Um þessar mundir tíðkast í bloggheimum að kitla. Húsmóðirin var aldrei klukkuð en hún virðist ekki ætla að sleppa undan þessu kitl veseni. Þannig að...
7 hlutir sem ég ætla að gera áður en ég dey:
(þegar húsmóðirin var unglingur gerði hún svona lista - held að það sé búið að merkja við flestallt sem á honum var)
- Halda áfram að vera hamingjusöm
- Fara til Japan
- Eignast barnabörn (ræð kannski ekki miklu um það en ætla samt)
- Skíða í Ölpunum
- Klára meistaraprófið
- Flytja í stærra húsnæði
- Eignast það mikið af peningum að ég þurfi ekki að hafa áhyggjur af þeim síðustu árin áður en ég dey.
7 hlutir sem ég get:
- skrifað
- keyrt
- hjólað
- elskað
- grátið
- hlegið
- gengið með börn
7 hlutir sem ég get alls ekki:
- fætt börn
- snert nefið með tungunni
- logið á sannfærandi hátt
- talað lágt ef mikið liggur við
- gengið á höndum
- farið í spígat (get næstum farið í splitt)
- hætt að elska fjölskylduna mína
7 hlutir sem heilla mig við hitt kynið:
- vel snyrtar hendur
- heiðarleiki
- húmor
- samræðulist
- gáfur
- björt og lifandi augu
- stuttklipptur hnakki sem er gott að strjúka
7 frægir sem heilla:
- James Spader
- Dustin Hoffman (dáldið gamall en alltaf æðislegur)
- Örninn er dáldið sætur
- David Ginola (geðveikur kroppur með flottan hreim - og svo er hann líka trekkari)
- Svartinaggur þegar hann var hasarmyndahetja
- Tim Burton (man ekkert hvernig hann lítur út en hann býr til heillandi myndir)
- Shakespeare
7 orð eða setningar sem ég nota mikið:
- jamm...
- Halló!
- Þú ert að grínast!
- Ég get svo svarið það!
- Ég skal telja hvað þú getur verið fljótur (notað svona 10 sinnum á dag)
- æi
- Góða nótt og sofðu rótt, Guð og englarnir vaka yfir þér í alla nótt
7 hlutir sem ég sé núna:
- Lampi
- Vatnsflaska
- Body lotion
- Skólataska
- Straumbreytir
- Bílar
- Giftingahringur
Af tillitssemi við aðra bloggara ætlar húsmóðirin ekki að kitla neinn. Verði þeim að góðu sem hafa gaman af að lesa þetta.