Hörföt í kulda og trekki
Karlkyns verslunarstjóri í fínni búð í Kringlunni er stundum að skottast í Odda. Er greinilega að bæta við kunnáttuna til að geta rekið fínu búðina ennþá betur. Miðvikudagar virðast vera hans lærdómsdagar og í morgun gekk hann stigann upp á þriðju hæð á undan húsmóðurinni. Þetta er nú varla í frásögur færandi nema hvað að maðurinn var klæddur í ljós hörjakkaföt. Og svona fyrir ykkur sem ekki vita það þá er strekkingsvindur og 0°C í Reykjavík í dag. Maður hebbdi nú haldið að maður sem lifir og hrærist í tískuheimi karla ætti að hafa meira "fashion sense" en svo að klæðast sumarfatnaði um hávetur. En svo bregðast krosstré sem önnur...
