mánudagur, ágúst 21, 2006

Hljóp... og hljóp svo aftur

Húsmóðirin lét verða að því sem hún hafði undirbúið í allt sumar. Hljóp 10 km og komst í mark án teljandi vandræða. Þarf ekki einu sinni að skammast sín mikið fyrir tímann - hann var svipaður og við var búist. Flestum hefði sennilega fundist komð nóg af hlaupum eftir þetta en húsmóðirin varð að sinna skyldum sínum síðar um daginn og hlaupa Latabæjarmarþonið, ýmist með drenginn í eftirdragi eða á sprettinum á eftir honum. Reyndar hafði stjörnulögfræðingurinn ætlað að taka Latabæjarhlaupið að sér en eins og stjörnulögfræðinga er siður var hann kallaður út til að bjarga mannkyninu snemma að morgni og tók sú björgun allan daginn. Þeirri stuttu var því komið í fóstur hjá meðhlaupara húsmóðurinnar á meðan sprett var úr spori með Íþróttaálfinum. Hlaupin enduðu svo í kaffi hjá afa langa. Það var frekar þreytt, en ánægð, húsmóðir sem lagðist á koddann að kvöldi laugardags.

föstudagur, ágúst 18, 2006

Þetta er útsýnið...


sem húsmóðirin mun hafa þegar hún vaknar að morgni 1. september. Bara tvær vikur í brottför...

miðvikudagur, ágúst 16, 2006

Pressa

Stjörnulögfræðingurinn tilkynnti drengnum í morgun að hann væri á leiðinni til Spánar eftir tvær vikur. Þá er það semsagt orðið opinbert: Krílafjölskyldan ætlar að skella sér í sólina með stórfjölskyldunni af Kjalarlandsslektinu. Þetta hafði reyndar legið í loftinu í nokkurn tíma en nú þegar heimilisfaðirinn hefur tekið ákvörðun verður væntanlega ekki aftur snúið. Reyndar er ekki búið að kaupa ferðina en það gerist í rólegheitum næstu daga. Rólegheit í þessu sem öðru hjá krílafjölskyldunni. En þessi ákvörðun gerir það að verkum að nú er húsmóðirin undir gríðarlegri pressu að klára ritgerðina áður en haldið verður úr landi. Hún hefur því núna nákvæmlega tvær vikur til að leggja lokahönd á meistaraverkið. Það verður því sennilega unnið dag og nótt svo hægt sé að slappa af í sólinni. Reyndar hefur húsmóðirin alltaf unnið vel undir pressu þannig að þetta er bara hið besta mál. Og svo verður ógeðslega gott að liggja á ströndinni og maka á sig sólaráburði á meðan haustkuldinn skellur á Frónbúum.

mánudagur, ágúst 07, 2006

Góð innihátíð

Húsmóðirin er mjög sátt við innihátíðina í ár. Laugardagurinn fór í hjólatúr krílafjölskyldunnar. Drengurinn hjólaði með hjálpardekkin alla leið í Nauthólsvík og tilbaka til ömmu í Kvistó þar sem hann fékk ís fyrir erfiðið. Heima biðu svo nauta rib-eye steikur sem krílin borðuðu bæði með bestu lyst og sú stutta bað um "meija" eftir að hafa torgað heilli steik.
Á sunnudag barst krílunum liðsauki en skáldkonan úr vesturbænum og sonur hennar heiðruðu innihátíðina með nærveru sinni. Fengu þau amerískar vöfflur úr pakka en ektra rjóma með. Að kvöldi sunnudags brugðu krílin og foreldrarnir undir sig betri fætinum og skunduðu á veitingastað í miðbænum. Á heimleið var komið við á myndbandaleigu og sú stutta átti stórleik þar. Byrjaði á að tæma heila hillu af gamaldags vhs-spóluhulstrum sem hún raðaði upp í turn. Miklu aðgengilegra þannig. Þá fann hún tvær dvd myndir sem hún hélt á í sitthvorri hönd og hljóp um alllt veifandi þeim út í loftið. Húsmóðirin var ekki lengi að ná þeim af henni þegar hún sá titilinn á annarri myndinni. "Amy´s orgasm" er ekki alveg það sem 18 mánaða skottur eiga að hlaupa um með, jafnvel þótt þær séu Von Brussland.
Mánudagurinn hófst með áhorfi á "Sky-high" sem Skjárinn veitti inn í stofu. Eftir miklar ofurhetjupælingar var drengurinn sannfærður um að hann bjyggi yfir ofurkröftum. "Sjáðu mamma, ég hef ofurkrafta. Ég getur lyft heilum stól," sagði hann með TripTrap í fanginu. Miklir ofurkraftar þar. Húsdýragarðurinn tók því næst á móti krílafjölskyldunni þar sem nautinu var klappað en sú stutta kallaði öll dýrin "bí bí" og vildi kyssa þau flest. Dagurinn endaði svo í pönnsum hjá afa og ömmu í Kjaló.
Húsmóðirin er sannfærð um að betri innhátíðardagskrá er vanfundin.

fimmtudagur, ágúst 03, 2006

Innipúkar

Húsmóðrin og hyski hennar hefur tekið ákvörðun um að vera innipúkar um verslunarmannahelgina. Til boða stóð að fara í sumarbústað en ákvörðun um að vera heima í rigningunni var tekin húsmóðurinni til töluverðrar ánægju. Það er nefnilega hvergi betra að vera um verslunarmannahelgi en í Reykjavík. Fámenni og lítil umferð. Hægt að fara í sund án þess að troða niður mann og annan í baráttu um sturtur og á veitingastöðum er lítið mál að fá borð á besta stað. Svo er húsmóðirin þá laus við stress sem fylgir því að pakka niður flíkum og rúmfötum fyrir allt hyskið, ekki þarf að skipuleggja matseðilinn frá morgni til kvölds þrjá daga fram í tímann og bakið kvartar ekki yfir setu í bíl. Góð ákvörðun að vera heima...