kosningadagur
Húsmóðurinni finnst gaman að kjósa. Í gær skundaði hún á kjörstað ásamt móður, föður, afa og börnunum tveimur - fjórir ættliðir á kjörstað, geri aðrir betur. Þegar allir voru búnir að númera af hjartans lyst lá leiðin í Perluna þar sem belgískar vöfflur og ís voru innbyrt af mikilli áfergju. Svona á maður líka að gera þetta - gera sér glaðan dag í kringum kosningar. Fjórir ættiliðir skemmtu sér stórvel þótt ekki hafi allir verið sammála um hvernig númerunum var raðað - en það er önnur saga.

3 sagt:
Go Kerry! Nei, það voru víst allt aðrar kosningar.
Hvað ætla sjálfstæðismenn að gera við því að börn sífellt vaði í hillur foreldra sinna og rífi þar niður bækur, sér í lagi eftir Kristínu Ómarsdóttur?
Hmmm... spurning hvort það sé ekki hreinlega við monthanann að sakast?
Skrifa ummæli
<< Home