mánudagur, nóvember 28, 2005

Móðursystir

Nú er húsmóðirin loksins orðin móðursystir. Litla systir tók helgina í að hamast við að pota litlum dreng í heiminn sem var knúsaður í bak og fyrir af afa, ömmu og nýbakaðri móðursystur í gærkvöldi. Litli kall er algert krútt eins og öll börn í þessari fjölskyldu. Nú verður stuð á jólunum hjá afa og ömmu í Kjaló. Ferfalt húrra fyrir krílum af Kjalarlandsslektinu: Húrra, húrra, húrra, húrraaaaaaa!

2 sagt:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Til hamingju með þennan fína titil. Þó svo ég sé ekki skyld barninu fékk ég það í gegn að verða kölluð Anna "frænka".

Kveðja frá Önnu "frænku" eða bestuvinkonufrænkunni :)

28/11/05 12:50  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Til lukku!!!

29/11/05 11:33  

Skrifa ummæli

<< Home