Neytendavaktin
Húsmóðirin hefur verið frekar löt við bloggið undanfarið og óttast að hún tapi brátt þeim fáu lesendum sem hún þó hefur. Í dag verður því bloggað og er neytendavaktin á ferðinni í þetta skiptið.
Húsmóðirin þurfti að koma sængurfatnaði í þvott og yfirhöfnum í hreinsun fyrir jólin og lá leiðin í Efnalaugina Björgu til að sinna þessum erindinum. Þegar þangað var komið stóð rytjuleg kona innan við afgreiðsluborðið sem tilkynnti húsmóðurinni að hún þyrfti að fara á bakvið og skipta um skó, áður en hún gæti afgreitt þvottinn. Húsmóðurinni fannst þetta örlítið skrítin þjónusta en ákvað að láta þetta ekki á sig fá. Þegar sú rytjulega sneri aftur, komin í aðra skó, tók hún til við að skrá inn þvottinn. Á meðan á skráningunni stóð tilkynnti sú rytjulega að þvotturinn yrði ekki tilbúinn fyrr en eftir jól. Húsmóðirin hváði enda einir 6 dagar til jóla og tilkynning um að efnalaugin yrði opin til kl. 21.00 á Þorláksmessu blasti við viðskiptavinum. Svarið var á þá leið að það tæki alltaf viku að afgreiða þvott hvort sem það væru jól eða ekki.
Það var kannski ekki svarið sjálft sem stuðaði húsmóðurina heldur miklu frekar viðmót þeirrar rytjulegu því konan sú hafði greinilega alveg gleymt að fara í röðina þegar verið var að úthluta kurteisi og viðmótsþýðu. Húsmóðirin tók því saman föggur sínar og sagðist fara með viðskipti sín annað. Arkaði hún út í bíl og ók niður í Skeifu þar sem broshýr stúka merkt Fönn tók glöð á móti þvottinum sem húsmóðirin má sækja á föstudaginn.
Þar missti Björg einn viðskiptavin en Fönn eignaðist einn.
