föstudagur, október 28, 2005

Skynsemisröddin

Húsmóðurinni fannst um tíma í dag sem hún væri eldgömul og afdönkuð, alltaf tuðandi yfir öllu og neikvæð gagnvart hverju því sem kastað er fram. Kom þá ekki ungur riddari henni til bjargar, sagðist sammála gagnrýni hennar og gerði húsmóðurinni ljóst að hún er ekki gömul heldur skynsöm.

miðvikudagur, október 26, 2005

Kvenfélagsfundur

Kvenfélagið hittist í gærkvöld og snæddi dýrindis mat á heimili einnar kvenfélagskonu. Mikið sem húsmóðirin var lukkuleg með matinn og umræðuna um utanlandsferðina sem áætlað er að kvenfélagið leggi í að hausti 2006. Þá verður nú mikið verslað, etið og hlegið. Eitt er víst að húsmóðirin er með harðsperrur í maganum eftir hláturinn í gær og er það ekki fyrsta skipti sem slíkt gerist daginn eftir kvenfélagsfund. Mikið sem það er nú gaman að eiga skemmtilegar vinkonur.

mánudagur, október 24, 2005

Rauðir sokkar

Húsmóðirin skartaði rauðum sokkum í dag. Í þessum sokkum arkaði hún niður í miðbæ og dró með sér móður sína, kasólétta systur og tvö börn. Það var voða gaman og mikil stemmning en svo varð hyski húsmóðurinnar kalt og þá var ekið sem leið lá austur í bæ með viðkomu hjá Jóa Fel. Hyskið ornaði sér svo við kaffi og meðí. Það var fínt að vera í rauðum sokkum í dag.

Kúkandi ávextir

Húsmóðirin brá undir sig betri fætinum í gær og fór með drenginn að sjá Ávaxtakörfuna. Sýningin var alveg hreint hin ágætasta skemmtun en eitthvað var tæknin að stríða ávöxtunum því ýmist heyrðist lítið í þeim eða þá að brakaði ógurlega í hljóðnemunum. Húsmóðurinni þótti samt gaman að sjá gamla félaga sem hún stóð á sviði með á öndverðum þrítugsaldrinum slá í gegn sem jarðarber og grænn, lífrænt ræktaður banani. Gömul skólasystir stóð sig mjög vel í hlutverki Evu appelsínu og uppskar mikið klapp og hlátur. Það skyldi þó aldrei vera að leikhæfileikarnir séu að brjótast fram þar???
Sorglegastar þóttu húsmóðurinni þó tilraunir til fyndni með kúkabröndurum sem urðu í heildina þrír - og voru allir mjög ófyndnir, meira að segja börnin hlógu ekki að þeim. Drengurinn hneykslaðist bara á því að bananinn þyrfti alltaf að vera að kúka en hló ekki. Það er nefnilega margt fyndnara en að kúka - þessu þurfa fullorðnir að átta sig á. Húsmóðirin skilur heldur ekki rökfærsluna á bak við það að láta ávexti kúka - það vita það allir að það eru bara dýrin sem ganga örna sinna! Hitt er svo annað mál að ávextir geta heldur ekki sungið og dansað - en það er allt önnur Ella!

föstudagur, október 21, 2005

Andleysi

Bloggleti húsmóðurinnar má undanfarið skrifa að miklu leyti á andleysi. Nokkrum sinnum hefur hún setið við tölvuna, alveg í blogggírnum en ekki fundist neitt þess virði að skrifa það niður. Staðan í dag er eiginlega alveg nákvæmlega þannig nema húsmóðirin ákvað í stað þess að láta andleysið koma í veg fyrir að hún skrifaði að skrifa um andleysið. Svo er allt annar handleggur hvort einhver hefur áhuga á að lesa um meint húsmóðurandleysi...
Andleysið snýr reyndar að fleiru en bara bloggskrifum. Rykið safnast upp í hornum, þvotturinn er ýmist óhreinn í körfunni eða ósamanbrotinn (stjörnulögfræðingurinn hefur hent í nokkrar vélar undanfarið), líkamsræktarkortið er ónotað og djúp rassaför farin að myndast í sófanum. Andleysið rauk þó upp úr öllu valdi fyrr í dag þegar húsmóðirin nennti ekki að klára sudoku þrautina í Mogganum sem hún hefur þó haft fyrir að leysa alla daga síðustu viku (bara þá erfiðistu, hitt er bara tímaeyðsla).
Spurning hvort sólin úti gefi tilefni til að rífa húsmóðurrassinn upp úr sófanum og fara kannski að gera eitthvað sem ekki er gert í gegnum tölvu eða sjónvarp. Fylgist með, aldrei að vita nema húsmóðurbloggið taki við sér ef tekið verður á andleysisvandanum.

mánudagur, október 17, 2005

Annir á sængurkvennadeild

Húsmóðirin fór í gær að sjá nýjustu fjölskyldumeðlimina sem um þessar mundir dveljast á sængurkvennadeild LSH. Um er að ræða tvö stúlkubörn sem eru óskaplega yndisleg en alveg pínupons miðað við engilinn sem leikur sér þessa stundina við fætur húsmóðurinnar. Húsmóðurinni finnst sem það hafi verið í síðustu viku sem hún lá þar sjálf en þegar dagatalið er skoðað sýnir það að átta mánuðir eru liðnir. Úff, hvað tíminn líður hratt.
Heimsókninn kenndi húsmóðurinni þó eitt. Það er alveg spurning hvort ekki þurfi að endurskoða fengitímann innan krílafjölskyldunnar því það var svo rólegt á sængurkvennadeildinni ólíkt því sem var í þau tvö skipti sem húsmóðirin hefur dvalið þar með sín börn. Janúar og febrúar eru greinilega alltof vinsæll tími til að eiga börn. Reyndar er húsmóðirin á því að það sé mjög gott að eiga börn á þeim tíma árs þegar farið er að styttast í vorið og börnin orðin sæmilega stálpuð að sumri. Það er þó alveg ljóst að ef húsmóðirin fer út í þetta djobb í þriðja skiptið og ætlast til þess að fá góðan frið og jafnvel einkastofu á sængurkvennadeild þá verður að endurskoða fengitímann.

mánudagur, október 10, 2005

Húsmóðurangur

Það er tvennt sem angrar húsmóðurina þessa dagana. Annað er fyrir framan stofugluggann en hitt utan við svefnherbergisgluggann.

Stofugluggaangrið felst í þeirri ákvörðun skólayfirvalda á leitinu að banna reykingar á skólalóðinni. Slíkt er gott og blessað svo langt sem það nær en þetta bann hefur orðið til þess að blessuð börnin hanga úti við vegg íþróttahússins og púa þar sem þau eru í skjóli fyrir árvökulu auga húsvarðarins. Einhverstaðar verða þessi grey sennilega að vera en þessi staðsetning fer afskaplega í taugarnar á húsmóðurinni þar sem að reykjarstybbuna leggur beint upp að stofuglugganum og svölunum þar sem barnið sefur í sakleysi sínu. Það er alveg tímaspursmál hvenær húsmóðirin lætur verða að því að kvarta við skólayfirvöld yfir þessu.

Svefnherbergisgluggaangrið helgast af bifreiðaeign nýrra nágranna. Lágt gengi dollars hefur algerlega farið með alla skynsemi nágrannans lönd og leið. Risavaxinn pallbíll er nú ræstur snemma morguns hvort sem dagurinn tilheyrir helgi eður ei og eru drunurnar slíkar að húsmóðirin hélt fyrstu dagana að sorphirðudeild Reykjavíkurborgar væri farin að veita daglega þjónustu. Ef svo notalega vill til að húsmóðirin er sofandi kl. 07.00 á sunnudagsmorgni (sem gerist æ sjaldnar) þá er alveg víst að granninn góði vekur hana þegar tryllitækinu er startað.

Húsmóðirin hefur komist að því að það er vandlifað í nýja miðbænum.