föstudagur, nóvember 30, 2007

Af Pólverjum og minnisleysi

Það rifjaðist upp fyrir húsmóðurinn af hverju hún gerði blogghlé all langt. Þannig er nefnilega í pottinn búið að þegar kemur að því að skrifa niður þær hugrenningar sem mótast hafa í húsmóðurhöfði er eins og þær hverfi fyrir galdur í hvert sinn sem blogger er opnaður. Það gerðist einmitt rétt í þessu. En húsmóðirin á ráð undir rifi hverju og ákvað að stara bara á skjáinn þar til hugarþokunni létti. Og viti menn - það virkaði.
Umhugsunarefnið að þessu sinni var tengt leiguíbúðum og Pólverjum. Það virðist nefnilega vera endalaust framboð af Pólverjum sem vilja leigja íbúð og hafa þeir sem eftir einhverjum leiðum vita af mögulegri leiguíbúð í ranni húsmóðurinnar og stjörnulögfræðingsins farið þess á leit í fleiri en eitt skipti að við opnum dyr okkar fyrir Pólverjum. Hafa fyrirspurnirnar jafnvel farið í það að allt að sjö Pólverjar úr verkamannastétt gætu vel komist fyrir í þessari þriggja herbergja íbúð.
Húsmóðirin og stjörnulögfræðingurinn standa þó föst á því að leigja helst aðeins fjölskyldufóki og þá skiptir þjóðernið ekki öllu máli. Tveir eða fleiri fullvaxnir karlmenn rúmast ekki á neðri hæðinni.

fimmtudagur, nóvember 29, 2007

Aðgerð: Taka tvö

Húsmóðirin lagðist í lestur í kvöld. Eftir að hafa brosað, og jafnvel hlegið, yfir færslum og athugasemdum tók frúin ákvörðun um að setja í framkvæmd aðgerð: taka tvö. Þrátt fyrir annir í vinnu skal sitthvað skrásett, krílafjölskyldunni og þeirra nánustu til gleði, yndisauka og svo líka bara til að gleyma ekki öllu því skemmtilega sem börnin segja og gera.
Er þetta ekki líka hin besta leið til að kúpla sig út úr vinnuhamnum? Svör óskast frá bloggandi framakonum.

föstudagur, nóvember 23, 2007

júhú

Komst loksins aftur inn á blogger... ætli maður fari að gera þetta að vana aftur???