fimmtudagur, ágúst 25, 2005
Húsmóðirin er að pakka niður í tösku. Bikiní og stuttbuxur, sandalar og sólhattar rata þangað og ein, tvær peysur, svona ef það skyldi verða kalt á kvöldin. Sólarstrendur, rússíbanar og vatnsrennibrautir bíða þess að krílafjölskyldan láti sjá sig. Það verður athyglisvert að sjá hvernig gengur að rífa krílin upp úr rúmunum kl. 03.00 til að fara út á völl. Það verður sennilega þreytt krílafjölskylda sem kemur leggst í sandinn á Costa Dorada. ?Cómo estás? Cansado!!!
miðvikudagur, ágúst 24, 2005
Þjóðernissinninn
BHB: Mamma, af hverju er íslenski fáninn blár, rauður og hvítur?
HDB: Blái liturinn táknar hafið, rauði liturinn eldinn í eldfjöllunum og hvíti liturinn táknar jöklana og snjóinn.
BHB: Já, og hrísgrjónin. Þau eru líka hvít.
HDB: Blái liturinn táknar hafið, rauði liturinn eldinn í eldfjöllunum og hvíti liturinn táknar jöklana og snjóinn.
BHB: Já, og hrísgrjónin. Þau eru líka hvít.
þriðjudagur, ágúst 23, 2005
Bókarinn
Ástæðan fyrir spjallleysi undanfarið er sú að húsmóðirin hefur setið sveitt yfir bókhaldi stjörnulögfræðingsins. Í öllum svitanum tókst húsmóðurinni að ná sér í kvef og hefur því bæði svitnað og snýtt sér í bókhaldið. Aumingja endurskoðandinn! Bókhaldsfærslum lauk í dag og ætlar stjörnulögfræðingurinn að launa bókaranum með einhverju góðu að borða í kvöld.
Þá er ekkert annað að gera en að ná úr sér kvefinu áður en haldið verður á vit sólar og stranda á föstudagsmorguninn. aaaaaaaatsjú!
Þá er ekkert annað að gera en að ná úr sér kvefinu áður en haldið verður á vit sólar og stranda á föstudagsmorguninn. aaaaaaaatsjú!
fimmtudagur, ágúst 18, 2005
Staðið við stóru orðin
Stjörnulögfræðingurinn hefur afsannað þá kenningu að ekkert nema bull og orðin tóm komi út úr meðlimum starfstéttarinnar. Hann hefur ákveðið að standa við stóru orðin og í gær var bókuð eitt stykki tólf daga ferð í sólina fyrir krílafjölskylduna. Þeir sem ekki muna ástæðuna fyrir stóru orðunum er bent á að rifja upp þessa færslu.
Húrra fyrir orðagjammi undir áhrifum áfengis.
þriðjudagur, ágúst 16, 2005
Sápa
Húsmóðirin á það til að detta í Nágranna og hefur raunar fylgst með íbúum Ramsey strætis annað slagið allt frá því að sýningar hófust fyrir hartnær tuttugu árum. Það besta við Granna er að það er hægt að taka sér tveggja ára hlé frá því að horfa en vera samt ekki nema einn þátt að koma sér inn í allt sem hefur gerst frá því að síðast var horft. Grannar hafa reynst húsmóðurinni sérstaklega vel í fæðingarorlofum og stundum hefur húsmóðirin gerst sek um að horfa á þáttinn bæði í hádeginu og seinnipartinn. Í flestum tilvikum er það þó helst til mikið af hinum góða.
Eitt er það þó sem alltaf hefur vafist fyrir húsmóðurinni og það er hvernig tímanum líður hjá þessum andfætlingum okkar. Sumir verða átján ára og mega þá kaupa sér bjór hjá Lou - svo líða kannski sex til sjö ár, viðkomandi leikari hættir í þáttunum og snýr svo aftur, rétt fyrir tuttugu og eins árs afmælið! Sumar konur í Nágrönnum virðast líka vera fílar. Í það minnsta hafa þær meðgöngutíma á við fíla. Izzy varð til dæmis ólétt þegar húsmóðirin var nýbúin að eignast barn en það var fyrir sléttum sex mánuðum. Hún ætti því samkvæmt okkar tímatali að vera komin u.þ.b. sex mánuði á leið. Stúlkan er hins vegar enn í dag mjó eins og kústskaft og ekkert farið að styttast í að hún eigi þetta blessaða barn. Svona er nú sápuveröldin skrýtin.
fimmtudagur, ágúst 11, 2005
Harðsperrur
Húsmóðirin er eins og spýtukall í dag. Þar sem nú er ætlunin að ná óléttukílóunum af sér er húsmóðirin farin að fara í Laugar og tók vel á því þar fyrir tveimur dögum. Eins og þeir sem reynt hafa að koma sér í form eftir langt hlé vita þá eru harðsperrur verstar tveimur dögum eftir æfingar. Rithöfundur úr vesturbænum lét svo reyna á nýtt leiðakerfi Strætó í gær og ferðaðist alla leið í austurbæinn ásamt syni sínum og apa hans. Úr þeirri heimsókn varð heljarinnar göngutúr sem endaði með kökuáti (sem núllast út í kaloríum séð því við drukkum Sprite zero með). En eftir tvo líkamlega aktíva daga eru harðsperrurnar farnar að segja til sín. Húsmóðirin er semsagt eins og spýtukall í dag.
miðvikudagur, ágúst 10, 2005
Og búið...
Loftljósið komið upp og þar með lýkur formlega yfirhalningu á barnaherberginu. Verst hvað þau eru lengi að sofna á kvöldin svona saman í herbergi en það er önnur saga.
Loftljós - taka 1
Úff - húsmóðirn er sveitt eftir fyrstu lotu í átökum við að koma upp loftljósi í barnaherberginu. Það er greinilegt að á heimilið vantar svona borvél til að skrúfa allan fjandann. Ef slíkt tól hefði verið til á heimilinu væri húsmóðirin ekki svona sveitt og illt í úlnliðnum og væri þar að auki löngu búin að setja upp ljósið. En það er víst ekki eftir neinu að bíða - rafmagnstengingar bíða. Best að muna að slá út fyrst ;)
mánudagur, ágúst 08, 2005
Ný húsgögn
Húsmóðirn var verkstjóri við samsetningu nýs rúms fyrir drenginn í gær. Stjörnulögfræðingurinn stóð með stjörnuskrúfjárn megnið úr deginum og skrúfaði saman rúmið eftir forskrift húsmóðurinnar á milli þess sem hlaupið var inn í stofu til að fylgjast með góðgerðarskildinum. Guttinn var mjög hamingjusamur með nýja rúmið, sér í lagi þegar búið var að skreyta það í anda Spiderman. Þrátt fyrir nýtt og stærra rúm fann hann engu að síður þörf hjá sér að skríða uppí til mömmu og pabba um miðja nótt. Það var þó auðsótt að fá hann aftur í rúmið með orðunum "Viltu ekki koma aftur í Spiderman-rúmið". Verkefni dagsins í dag er að koma öllu dótinu fyrir undir hinu hálf-háa Spiderman-rúmi og koma rimlarúminu fyrir. Sökum þess að lottóvinningurinn hefur látið á sér standa verða systkinin að deila með sér herbergi - í það minnsta á meðan þau komast þar bæði fyrir.
fimmtudagur, ágúst 04, 2005
Hróður gamalla félaga
Húsmóðurinni finnst gaman að fylgjast með gömlum félögum gera það gott. Þannig er hún glöð á morgnanna að sjá gamlan sessunaut úr skóla spjalla við hina og þessa um heima og geima á öldum ljósvakans. Annar skólafélagi hefur tekið að sér að ritstýra unglingablaði í samvinnu við sér tíu árum yngri mann. Reyndar vill stjörnulögmaðurinn meina að frúin sé of gömul í starfið en hún sinnir því ágætlega að mati húsmóðurinnar. Þá er gamall bekkjarfélagi duglegur við að koma sér í sviðsljósið fyrir þann starfa að flytja inn mismerkilega listamenn til að skemmta landanum. Það gladdi hjarta húsmóðurinnar óneitanlega mikið að sjá tvo gamla bekkjarfélaga nefnda í nýjasta eintaki Frjálsrar verslunar. Það er ekki frá því að henni finnist hún eiga pínulítinn hlut í milljónunum sem þeir þéna og gleðst yfir velgengni þeirra enda um eðaldrengi að ræða. Telur húsmóðirin víst að stúlka ein úr ranni gamalla félaga gráti það í dag að hafa látið annan þeirra róa á sínum tíma. Er það nokkuð ljóst að stúlkan sú myndi ekki slá hendinni á móti þeim lífsstíl sem herran getur boðið uppá í dag. Menn sem eru nördalegir og pínu klikk geta nefnilega orðið ríkir þegar fram líða stundir.
miðvikudagur, ágúst 03, 2005
Matrófóbía
Húsmóðirin rakst á bakþanka í Fréttablaðinu í dag þar sem fjallað er um matrófóbíu sem snýst upp í það að sú sem haldin er fóbíunni fer að sýna af sér hegðun þá er fóbían snérist um. Þarna er þá loksins komið nafn þá þróun sem orðið hefur í ísskápsmálum húsmóðurinnar. Móðir húsmóðurinnar er nefnilega með skipulagðari manneskjum hér á Jörðu og ber ísskápurinn þess glögg merki. Á æskuheimili húsmóðurinnar var það ávísun á skammir og fýlu ef osturinn rataði ekki í rétta hillu og mjólkin villtist á milli hæða. Húsmóðirin var því alltaf staðráðin í því að í hennar ísskáp skyldi ríkja kaos. Ostur myndi fá að liggja innan um epli og appelsínur og mjólk og djús gætu lagst í margþráð ferðalög milli staða innan ísskápsins.
Það var með miklum semingi sem húsmóðirin viðurkenndi fyrir sjálfri sér eftir að flutt var að heiman að kaosið í ísskápnum truflaði hana gríðarlega. Þetta var hreinlega ekki að ganga. Þannig er því nú háttað svo að mjólkin á sinn stað í ísskáp húsmóðurinnar og osturinn situr penn í sinni hillu. Ávextir og grænmeti eru aðskilin í skúffum og sultan er heimakær í efstu hillunni. Ísskápurinn er gríðarlega vel skipulagður og húsmóðirin sefur betur á næturnar á meðan hún siglir hægfara inn í það umbreytinarferli að verða að móður sinni. Eiginmaðurinn þarf þó ekki að hafa áhyggjur af því að vera giftur tengdamóður sinni á meðan jafn mikið drasl er í íbúðinni og raun ber vitni. Mamma gamla myndi ekki þola við í þessu drasli í hálfa mínútu!
þriðjudagur, ágúst 02, 2005
Rútína
Húsmóðirin gleðst í dag yfir opnun leikskólans. Þvílík hamingja hjá drengnum að komast aftur í leikskólann og hamingja húsmóðurinnar var ekki minni. Glöð börn = glaðar mæður.
Nú fer allt að komast í samt lag, rútínan í gang, snemma á fætur og snemma að sofa - og nú fer harka lífsins að taka við hjá prinsessunni. Sofa á næturnar takk - ekkert brjóst og hananú!
Nú fer allt að komast í samt lag, rútínan í gang, snemma á fætur og snemma að sofa - og nú fer harka lífsins að taka við hjá prinsessunni. Sofa á næturnar takk - ekkert brjóst og hananú!
