fimmtudagur, júní 30, 2005
miðvikudagur, júní 29, 2005
spenningur
Húsmóðirin er að rifna úr spenningi. Litla systir er á þeim tíma sem þetta er skrifað í bíl á leið inn á kvenndeild Landspítala Háskólasjúkrahúss í ómskoðun. Spenningurinn er ekki síst sökum þess að reyna á að komast á snoðir um kyn væntanlegs frændsystkinis barna húsmóðurinnar.
Ííííííískur - ég er svo spennt!!!!!!!!
sunnudagur, júní 26, 2005
naktar konur
Húsmóðirin horfði á sjónvarpsstöðina Sirkus í gær en yfir miðjan daginn rúlluðu þar myndbönd með hinni fornfrægu hljómsveit Duran Duran. Húsmóðirin ætlar að sjálfsögðu, eins og flestir af hennar kynslóð, að leggja leið sína í Egilshöll á fimmtudaginn til að berja goðin augum - jafnvel þótt 10 ára stúlkunni hafi þótt Wham-strákarnir sætari. Húsmóðirin leyfði því Duran myndböndunum að rúlla til að koma sér í gírinn.
Meðal myndbanda sem fengu að rúlla yfir sjónvarpsskjáinn í gær var hið margumtalaða og forðum bannaða myndband við "Girls on film". Þótt myndbandið þyki e.t.v. ekki gróft í dag þá er töluvert um nekt og stelpurnar á filmunni hreinlega berrassaðar þegar líður á seinni hluta myndbandsins. Það var þó ekki nektin sem slík sem vakti athygli húsmóðurinnar þar sem hún sat með afþurrkunarklútinn í annari hönd og rúðuspreyið í hinni. Þar sem hún horfði á bera rassa og dinglandi brjóst áttaði hún sig á því að þessi eiginleiki brjósta að dingla er vart sjáanlegur lengur, nú á tímum sílíkons og lýtaaðgerða. Húsmóðirin verður að segja að hún saknar þess að sjá heilbrigða og eðlilega kroppa í sjónvarpinu þar sem brjóstin eru pínulítið ólöguleg og hanga kannski örlítið niður á maga sem bungar e.t.v. örlítið neðst. Og það sem meira er, það var ekki hægt að telja rifbeinin á stúlkunum á filmunni samt voru þær allar þvengmjóar - bara ekki anorexíumjóar eins og allar þær nútímastúlkur sem sjást berar nú til dags. Húsmóðirin er á því að sjónvarpsstöðvarnar ættu að gera átak í því að sýna tuttugu ára gömul myndskeið af berrössuðum konum til að ungt fólk geri sér grein fyrir því hvernig mannslíkaminn á að líta út - eins gullfallegur og hann nú er.
fimmtudagur, júní 23, 2005
Krílaréttur
Húsmóðirin er gift lögfræðingi. Upp hefur komið hugmynd að nýrri fræðibók fyrir þá grein sem nefnast ætti krílaréttur. Fjallar krílaréttur um rétt kríla en hann getur verið margvíslegur og oft og tíðum æði slunginn. Full þörf er því á frekari rannsóknum á þessu sviði.
Meðal ákvæða í krílarétti eru:
Kríli hafa rétt til þess að halda vöku fyrir foreldrum sínum að nóttu til við hvaða aðstæður sem er.
Kríli hafa rétt til þess að neita því að fara að sofa.
Kríli hafa rétt til þess að neita að borða.
Kríli hafa rétt til þess að sulla.
Kríli hafa rétt til þess að vera með læti.
Kríli hafa rétt til þess að æla á foreldra sína.
Kríli mega alltaf fá nammi og kók.
Kríli hafa rétt til þess að krefjast þess að foreldrar kaupi allt sem óskað er eftir, sér í lagi leikföng.
Kríli hafa rétt til þess að neita að fara í bað.
Krili hafa rétt til þess að vera óendanlega sæt og krúttileg.
Það segir sig því sjálft að foreldrar geta ekki annað en elskað krílin sín meira en nokkuð annað í þessum heimi.
Meðal ákvæða í krílarétti eru:
Kríli hafa rétt til þess að halda vöku fyrir foreldrum sínum að nóttu til við hvaða aðstæður sem er.
Kríli hafa rétt til þess að neita því að fara að sofa.
Kríli hafa rétt til þess að neita að borða.
Kríli hafa rétt til þess að sulla.
Kríli hafa rétt til þess að vera með læti.
Kríli hafa rétt til þess að æla á foreldra sína.
Kríli mega alltaf fá nammi og kók.
Kríli hafa rétt til þess að krefjast þess að foreldrar kaupi allt sem óskað er eftir, sér í lagi leikföng.
Kríli hafa rétt til þess að neita að fara í bað.
Krili hafa rétt til þess að vera óendanlega sæt og krúttileg.
Það segir sig því sjálft að foreldrar geta ekki annað en elskað krílin sín meira en nokkuð annað í þessum heimi.
miðvikudagur, júní 22, 2005
Sólblómaolíusamráð
Bresk vinkona húsmóðurinnar hefur nýhafið störf í litlu fyrirtæki sem útbýr hádegissnarl fyrir vinnandi fólk. Mikið er lagt uppúr því að allt hráefni sé lífrænt ræktað og útbúið á sem heilnæmastan og umhverfisvænstan hátt. Gengur forstýra fyrirtækisins svo langt í umhverfisvænleika sínum að hún er nú að íhuga breytinar á sendiferðabíl fyrirtækisins í þá átt að hann gangi fyrir sólblómaolíu. Uppúr þessu hafa sprottið miklar umræður, m.a. um það hvort hún komist þá undan því að greiða eldsneytisskatt og hvort að eiturgufur myndist síður við bruna sólblómaolíu. Að sögn kunnugra skilar bruni sólblómaolíu u.þ.b. jafn miklu magni af koltvísýringi út í andrúmsloftið og blómin sem olían er unnin úr tóku upp þegar þau voru enn með annan endan fastan við jörðu. Spurningunni með skattinn er enn ósvarað.
Ég sagði henni að fá sér bara vetnisbíl en það er víst mun ódýrara að breyta bílnum en að kaupa háþróaðan vetnisbíl - svo skilst mér að hægt sé að nota olíu sem þegar hefur verið notuð til að steikja fisk og franskar og því nóg af afgangsolíu að hafa frá beskum skyndibitastöðum. Get samt ekki alveg ímyndað mér að ganga um í umferðarútblæstri sem angar af gamalli steikarolíu. Ojbjakk!
mánudagur, júní 20, 2005
Sniff...
Húsmóðirin er með stíflað nef, hósta, hálsbólgu, höfuðverk og beinverki. Litla snúllan hóstar í kór við móður sína og úr litlu nefi lekur hor.
Aldeilis ástand á heimilinu...
Aldeilis ástand á heimilinu...
laugardagur, júní 18, 2005
Sól, sumar, svefnleysi og kaffi
Húsmóðirin var frekar ósofin á þjóðhátíðardaginn. Aldrei þessu vant var það ekki litlu prinsessunni að kenna, hún svaf eins og engill alla nóttina. Ástæðan var sú að við hjónakornin lentum á kjaftatörn uppi í rúmi eftir að ljósin voru slökkt og blöðruðum alveg fram á rauða nótt. Svefnleysi af þessum sökum er þó ánægjulegt og húsmóðurinni finnst allt í lagi að vera ósofin annað slagið ef ástæðan er sú að eiginmaðurinn er svo skemmtilegur að ekki er hægt að hætta að tala við hann. Þegar staðan er svona er engin ástæða til að fara með lokaorðin úr síðasta þætti af aðþrengdum eiginkonum.
Annars hóstar öll fjölskyldan í kór og ekki mikil afgangsorka til athafna. Við reynum því að flatmaga eins og við getum - eru ekki langar helgar annars til þess?
ps. Kaffiþyrstir athugið! Í eldhúsi húsmóðurinnar má nú finna forláta Saeco Incanto Sirius alsjálfvirka kaffikönnu. Vinir og vandamenn velkomnir í tíu dropa!
miðvikudagur, júní 15, 2005
Þriðji í veikindum...
... og vandamálið er að drengurinn er eiginlega varla veikur en samt of lasinn til að geta farið í leikskólann og vera úti allan daginn. Ég verð að segja að ég dáist að konum sem ákveða að taka eldri börnin sín úr leikskólanum á meðan þær eru í fæðingarorlofi. Ég er að verða geðveik eftir þrjá daga. Þetta væri eflaust auðveldara ef ég gæti bara rifið liðið út að morgni og verið á róló allan daginn eða í garðinum hjá mömmu. En nei, drengurinn þarf að vera með hita og ekki hægt að vera úti því þá fer hann að hósta af þvílíkum krafti að liggur við að iðrin gangi upp úr honum. Ég er að vona að hann verði leikskólafær á morgun en fram að því horfi ég á sólina út um gluggann :(
þriðjudagur, júní 14, 2005
Annar í veikindum
Og sjö ára frænka í heimsókn. Guði sé lof þar sem hún heldur uppi fjörinu og er meira en til í að leika við þann þriggja ára. Uppáhaldsleikfangið er ákkúrat núna hermikráka, grænn fugl á priki sem hefur þann "skemmtilega" sið að éta allt upp eftir þeim sem talar nálægt honum bara í örlítið hærra "pitsi". Gasalega gaman að hlusta á þetta í marga klukkutíma. Litla prinsessan er sem betur fer sofandi úti í vagni og ég get aðeins sest niður.
Annars er frekar mikil þreyta í mannskapnum þar sem sá stutti er farinn að venja sig á að skríða uppí um miðja nótt og eyðir það sem eftir lifur nætur í að sparka í foreldra sína þeim til mikillar ógleði. Orð dagsins: geisp!
Annars er frekar mikil þreyta í mannskapnum þar sem sá stutti er farinn að venja sig á að skríða uppí um miðja nótt og eyðir það sem eftir lifur nætur í að sparka í foreldra sína þeim til mikillar ógleði. Orð dagsins: geisp!
mánudagur, júní 13, 2005
Mistake
Sonur húsmóðurinnar fékk að ráða titlinum á þessari færslu en hann er lasinn og er því heima. Hann hóstar mikið og spáir nú ekki í það hvort litla systir verður fyrir hóstagusunum eða ekki. Vonum bara að mótefnin í brjóstamjólkinni geri sitt gagn. Drengurinn vill segja ykkur "Ég er lasinn og hóstar og langar bara að leika mér í dag". Svo mörg voru þau orð.
Það lítur því út fyrir að húsmóðirin eyði þessum fallega sumardegi bundin yfir börnum innandyra.
sunnudagur, júní 12, 2005
Fyrsti í sól og sumri...
... var í gær. Fjölskyldan spókaði sig í Nauthólsvíkinni seinni partinn og endaði einkasonurinn í busli á leiguskýlu. Þrátt fyrir dáldið kaldan vind var drengurinn hæstánægður með að fá að hlaupa um fáklæddur og stökkva svo ofaní busllaugina öðrum gestum til mismikillar ánægju. Meðal baðgesta voru fimm stykki 10 ára strákar með troðfulla blandípoka sem étið var úr milli þess sem kafað var í lauginni og buslað. Þriggja ára guttinn kunni sig nú betur en það að ráðast á sælgætisbirgðir strákanna en ákafari löngunarsvip hef ég sjaldan séð á mínum á meðan stóru strákarnir röðuðu í sig gotteríinu. Sá stutti fékk nammileysið bætt þegar leið á kvöldið en eftir mat fékk hann bæði Batman-ís og Bósa Ljósár-ís. Hvort tveggja mjög bragðvondir frostpinnar en ætir sökum nafnsins. Segiði svo að markaðsfræðingar geri ekki gagn!
Hvað sem vondum ís líður þá var gott að komast í sólina í Nauthólsvíkinni og sé ég fyrir mér að þar verði húsmóðirin með púkana sína í sumar ef veður leyfir. Við stelpurnar getum þá flatmagað í sandinum á meðan yfirpúkinn spriklar fáklæddur milli busllaugar og sjávar.
föstudagur, júní 10, 2005
Saumó
Húsmóðirin er að sjálfsögðu í saumaklúbbi eins og allar almennilegar konur á Íslandi. Í klúbbnum eru bekkjasystur úr Verzló og höfum við reynt að hittast nokkuð reglulega í þau 11 ár síðan við settum upp hvítu kollana. Útþrá í hópnum hefur verið nokkuð ríkjandi og var því ánægjulegt hve góð mæting var í gærkvöldi en það vantaði aðeins tvær konur en báðar eru þær staddar erlendis - önnur í Danmörku en hin í Noregi. Ein úr hópnum var nýlent eftir veturdvöl á Flórída þar sem hún var í framhaldsnámi, önnur í stuttri heimsókn en hún er búsett í Kaliforníu, sú þriðja rétt ófarin til New York fylkis þar sem hún ætlar að vinna en maðurinn hennar (sem reyndar var líka með okkur í bekk) er á leiðinni í framhaldsnám í barnalækningum og sú fjórða á leiðinni til Iowa í því skyni að hefja tilraunabúsetu með bandarískum kærasta sem hún fann í Egyptalandi í vetur.
Sú stutta var með húsmóðurinni í för enda þykir nokkuð merkilegt að stúlka skuli fæðast í saumaklúbbshópnum. Fram að fæðingu hennar hafði saumaklúbbskonum aðeins tekist að geta af sér drengi. Staðan er því 8-1. Svo er aldrei að vita hvað bætist við en á tímabili var það regla að sú sem hélt klúbbinn í hvert skipti var annaðhvort nýorðin ólétt eða um það bil að verða ólétt. Það verður spennandi að sjá hvort sú regla er enn í gildi ;)
miðvikudagur, júní 08, 2005
Mynd af mangókjúklingi á spínatbeði
Húsmóðirin er alltaf að læra eitthvað nýtt - tölvulæsið er alveg jafn gott og hæfileikarnir í eldhúsinu ;)
Mangókjúlli
Húsmóðirin bauð til hádegisverðar í dag. Lentu gestirnir í tilraunaeldhúsi þar sem framin var tilraun með kjúkling og mangó. Mæltist rétturinn vel fyrir og óskaði einn gestanna eftir því að tekin yrði mynd af réttinum þegar hann var kominn á diskana í þeim tilgangi að birta myndina á eigin bloggsíðu. Við fylgjumst spennt með á www.ingahanna.blogspot.com. Ég læt nægja að láta vísi að uppskrift fylgja.
Mangókjúklingur á spínatbeði
Kjúklingabringur og úrbeinuð læri; skorið í passlega bita og marinerað í Hot Mango chutney, ólífuolíu og dassi af Wok sjesjúan style frá Hot Spot. Grillað á grillpönnu þannig að bitarnir verða gullbrúnir og jafnvel dáldið karmelaseraðir
Spínati, papriku og gúrkum raðað á disk, kjúklingurinn þar ofaná og smátt skorið mangó (ferskt að sjálfsögðu) þar ofaná. Yfir þetta er svo skvett smá dressingu sem samanstendur af Hot Mango chutney, ólífuolíu, rauðvínsediki og smá salti (best að mixa þetta saman með töfrasprota).
Svo er þetta bara snætt með bestu lyst.
Og þá segir maður bara eins og Indriði: mmmm... dilisíus
Mangókjúklingur á spínatbeði
Kjúklingabringur og úrbeinuð læri; skorið í passlega bita og marinerað í Hot Mango chutney, ólífuolíu og dassi af Wok sjesjúan style frá Hot Spot. Grillað á grillpönnu þannig að bitarnir verða gullbrúnir og jafnvel dáldið karmelaseraðir
Spínati, papriku og gúrkum raðað á disk, kjúklingurinn þar ofaná og smátt skorið mangó (ferskt að sjálfsögðu) þar ofaná. Yfir þetta er svo skvett smá dressingu sem samanstendur af Hot Mango chutney, ólífuolíu, rauðvínsediki og smá salti (best að mixa þetta saman með töfrasprota).
Svo er þetta bara snætt með bestu lyst.
Og þá segir maður bara eins og Indriði: mmmm... dilisíus
þriðjudagur, júní 07, 2005
Geisladiskatiltekt
Húsmóðirin hefur hafist handa við sumartiltekt. Fyrsta verkið fólst í því að taka alla geisladiska okkar hjóna og koma þeim fyrir í kössum sem keyptir voru í IKEA í gær. Húsmóðirin gat þó ekki setið á sér, leyfði meyjunni í sér að brjótast fram og tók sér smá aukatíma í að raða geisladiskunum í stafrófsröð svo að auðveldara sé að finna þá tónlist sem leitað er að. Ýmislegt kom í ljós við þessa iðju, t.d. geisladiskur sem við hjónin gerðum dauðaleit að fyrir brúðkaupið en fannst hvergi.
Eitt kom mér þó á óvart en aðeins einn diskur er til í tveimur eintökum. Ég hef alltaf staðið í þeirri trú að við hjónin hefðum mjög áþekkan tónlistarsmekk og vorum við bæði tiltölulega dugleg við að kaupa geisladiska áður en við rugluðum reytum okkar saman. En nei, aðeins einn einasti geisladiskur til í tveimur eintökum. Þannig að ef einhvern vantar Automatic for the people með R.E.M. þá getum við mögulega séð af öðru eintakinu í góðar hendur.
mánudagur, júní 06, 2005
Séð og heyrt í sundi
Húsmóðirin fór með fjölskylduna í sund í gær. Sólin skein í heiði og til að hægt væri að njóta hennar til fulls varð Laugardalslaugin fyrir valinu. Litla prinsessubarnið fór því í útisundlaug í fyrsta skipti á ævinni með forláta sundhettu á höfði. Skemmst er frá því að segja að sundferðin gekk vel og skemmtu börnin tvö sér stórvel, ekki síst sú stutta sem hló og skríkti í barnalauginni.
Laugarnar eru alltaf góður staður að fara á ef áhugi er á að komasta að hinu og þessu um mökunarferli borgaranna. Þannig æxlaðist í gær að húsmóðirin rakst á ónefnda æskuvinkonu sem í seinni tíð hefur látið lyfta barminum allverulega. Var vinkonan stödd í heita pottinum ásamt ónefndum fyrrverandi útvarpsmanni sem er um það bil helmingi eldri en húsmóðirin og vinkonan. Reyndar kemur samband þeirra sem slíkt ekki á óvart þar sem þau hafa verið svona ,,on and off" undanfarin ár en síðast þegar húsmóðirin vissi voru þau ,,off". Ekki var annað að sjá í gær en að þau væru aftur ,,on". Ef bið verður á laugaferð hjá húsmóðurinni má væntanlega lesa um það í Séð og heyrt þegar þau verða aftur ,,off".
sunnudagur, júní 05, 2005
Stjörnur í augunum
Húsmóðirin varð mjög spennt á dögunum þegar hún hlustaði á tilkynningu í útvarpinu þar sem fjallað var um tískusýningu sem Mosaik Fashion stendur fyrir í skautahöllinni á næstunni. Það var þó ekki tískusýningin sjálf sem olli spenningnum heldur upptalning á þeim erlendu gestum sem von er á. Þeirra á meðal er kona ein að nafni Denise Van Outen sem er sennilega fæstum Íslendingum kunn en þeim mun frægari á Bretlandseyjum. Hún er gasalega sæt og smart og líka voða klár - það finnst húsmóðurinni allavega. Fröken Van Outen er ein af fáum kvenkyns diskaþeyturum á BBC Radio 1 og hefur að auki stýrt nokkrum sjónvarpsþáttum með bravúr. Mögulegt er að einhverjir hér heima þekki hana fyrir að hafa gifst söngvaranum Jay Kay en að húsmæðramati er sú athöfn ein af þeim lítilvægari á ferli hennar. Þegar húsmóðirin bjó í Englandi dreymdi hana um að hitta fröken Van Outen, og nú þegar von er á konunni til landsins gerir húsmóðirin sér vonir um að hún fái loksins að berja goðið augum.
Húsmóðirin er því, aldrei slíku vant, mjög spennt fyrir hugaðri tískusýningu og aldrei að vita nema hún reyni að verða sér úti um miða á téða sýningu. Þeir sem þekkja ráð til að komast á sýninguna mega gjarnan skrá upplýsingar í athugasemdir.
Húsmóðirin er því, aldrei slíku vant, mjög spennt fyrir hugaðri tískusýningu og aldrei að vita nema hún reyni að verða sér úti um miða á téða sýningu. Þeir sem þekkja ráð til að komast á sýninguna mega gjarnan skrá upplýsingar í athugasemdir.
föstudagur, júní 03, 2005
Viðskiptasnilli
Nú er húsmóðirin ægilega ánægð með snilli sína og mælsku. Okkur hjónunum áksotnaðist stærðarinnar eldunartæki um daginn sem olli nokkrum vandræðum því sökum stærðarinnar kemst tækið engan veginn fyrir þar sem því er ætlað að vera. Gamla tækið sem gegnir sama tilgangi stendur líka vel fyrir sínu þótt útlitið sé ekki upp á marga fiska. Fannst okkur því ekki þjóna neinum tilgangi að skipta stóra fína tækinu út fyrir annað smærra. Nú voru góð ráð dýr því ekki er margt til sem heimilið þarfnast í þeirri verslun sem eldunartækið kemur úr. Húsmóðirin brá því á það ráð að hringja milli manna í fyrirtækinu sem verslunina rekur og til að gera langa sögu stutta þá fékk frúin það í gegn að fá tækið endurgreitt. Við hjónin munum því skunda í aðra verslun innan skamms og leggja féð sem fékkst fyrir eldunartækið í eðalkaffimaskínu sem er svo fullkomin að hún nánast drekkur fyrir mann kaffið.
Þið vitið þá hvert þið eigið að leita ef ykkur þyrstir í espresso, latte, macchiato, cappuchino...
Þið vitið þá hvert þið eigið að leita ef ykkur þyrstir í espresso, latte, macchiato, cappuchino...
fimmtudagur, júní 02, 2005
Jæja....
... þá ætlar maður að fara að nýta tímann á meðan barnið sefur í eitthvað allt annað en að taka til heima hjá sér, stunda líkamsrækt eða bara fara út að labba. Nei, nú ætlar húsmóðirin í austurbænum að láta reyna á hversu mikill tölvunörd hún er í raun og veru og fara að blogga. Þið sem þekkið mig megið svo alveg gera grín að mér þegar ég spring á limminu.
En bara svona til að hafa það alveg á hreinu þá var ég einstaklega slakur dagbókaskrifari á æsku- og unglingsárum svo að ég lofa ekki neinu með framvinduna hér.
Sjáum svo bara til hvort uppákomur í lífi húsmóður í austurbænum teljast nógu skemmtilegar til að sú hin sama sjái ástæðu til að deila þeim með þeim sem flækjast hingað inn.
En bara svona til að hafa það alveg á hreinu þá var ég einstaklega slakur dagbókaskrifari á æsku- og unglingsárum svo að ég lofa ekki neinu með framvinduna hér.
Sjáum svo bara til hvort uppákomur í lífi húsmóður í austurbænum teljast nógu skemmtilegar til að sú hin sama sjái ástæðu til að deila þeim með þeim sem flækjast hingað inn.

