fimmtudagur, júlí 27, 2006

Fyrirsögn dagsins á mbl.is

Og Vodafone eflir GSM-þjónustu í Öxnadal

föstudagur, júlí 07, 2006

Magni fór ekki heim

Eftir að hafa skoðað myndir úr fyrsta útsláttarþættinum af RockStar:Supernove er húsmóðirin sannfærð um að Magni er góði gæinn sem hughreystir alla og er massa traustur stuðningsaðili. Faðmlag hans og hins útskúfaða Matt segir meira en mörg orð. Húsmóðirin er viss um að Magni á eftir að komast eitthvað áfram á því að vera góði gæinn en samt rosa rokkari. Fer samt ekki ofan af því að hann er ekki töffari. Menn sem ranghvolfa augunum í gríð og erg eru ekki töff. Það er lúðalegt að ranghvolfa augunum.