Dugleg stelpa
Húsmóðirin var dugleg í dag, þó alls ekki við hefðbundin húsmóður störf. Nei, frúin sat sveitt yfir fræðigreinum og markaðsrannsóknum á meðan sú stutta skemmti sér hjá ömmu sinni. Nú stefnir líka í að húsmóðirin fari að vera öflugri námsmaður þar sem pláss hjá dagmömmu fyrir þá stuttu er í sjónmáli. Svo er bara að spýta í lófana og ná að útskrifast í júní. Go, go, go!

3 sagt:
Yess - markmið, viljastyrkur og útsjónarsemi!
Ég er hlynnt útskrift í júní en vertu ekkert að spýta í lófana, það er bara subbulegt og virtum húsmæðrum ekki samboðið. Kem í kaffi bráðum.
Til hamingju með dagmömmuna, það er ekki gefins í dag að komast að hjá þeim. Þær fara að toppa læknana í biðlistunum!!!
Skrifa ummæli
<< Home