föstudagur, september 30, 2005

Svartir menn

Samkvæmt þriggja ára syni húsmóðurinnar eru svartir menn svartir af því að þeir lentu í agalegum eldsvoða þegar þeir fæddust.

miðvikudagur, september 28, 2005

Svo bregðast krosstré sem önnur tré

Húsmóðirin á vinkonu sem í eina tíða var gallharður Framsóknamaður og má rekja Framsóknarblóð langt aftur í ættir hennar. Á Verzlunarskólaárunum vitnaði hún oft í kallinn afa sinn með frösum eins og "allt er betra en íhaldið" og "allt er vænt sem vel er grænt" en afinn sá hafði setið á hinu háa Alþingi fyrir Framsóknarflokkinn. Afinn hefur hvílt undir grænni torfu í allmörg ár en veltir sér eflaust marga hringi í gröfinni yfir framgangi mála á yfirborðinu. Jörðin sem afi kallinn átti fyrir vestan er núna í eigu framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins (og reyndar aðliggjandi jarðir og nánast sveitin öll einnig) og dótturdóttirin sem vitnaði í afa sinn með lotningu er nú orðinn flokksbundinn Sjálfstæðismaður og vinnur nú að því hörðum höndum að fá móður sína til að bindast Flokkinum blóðböndum. Það verður sennilega aldrei of oft sagt að enginn veit ævi sína fyrr en öll er!
Húsmóðirin býður vinkonuna velkomna í flokkinn.

þriðjudagur, september 27, 2005

leti

Húsmóðirin hefur verið afskaplega löt að skrifa eitthvað misgáfulegt hér á þessum vettvangi. Helgast það af tvennu; annars vegar hefur lítið markvert gerst og ekki margt legið á húsmóðurhjarta; hins vegar dregur það alltaf úr húsmóðurinni að skrifa þegar fáir (eða jafnvel enginn) sjá sér fært að tjá sig um það sem skrifað er. Húsmóðirin er nefnilega athyglissjúk í eðli sínu og vill endilega fá viðbrögð við því sem varpað er fram. Til að bæta úr þessu þarf tvennt til; húsmóðirin þarf að vera duglegri að skrifa og vera sniðug í skrifum sínum. Lesendur þurfa að vera duglegri að tjá sig um skrifin. Samhent átak takk!

föstudagur, september 23, 2005

Mislingabróðir...

... var greiningin hjá barnalækninum. Hiti í þrjá daga, roði og blöðrur í hálsi og eitlastækkun á aftanverðum hálsi, útbrot þegar hitinn fer. Algerlega meinlaus veirusýking. Þar hafið þið það!

miðvikudagur, september 21, 2005

Komið að því

Þá er komið að því. Sú stutta er komin með hita í fyrsta skipti. Húsmóðirin hefur því sett sig í stellingar og býr sig undir veikindadaga með parasupp-stíla að vopni. Vona þó að ekki komi til þess að grípa þurfi til vopna. Ennþá er allt með kyrrum kjörum. Frekari fréttir af vígstöðvunum verða skráðar þegar eitthvað fréttnæmt gerist.

mánudagur, september 19, 2005

Mánudagssvindl

Sudoku-þrautirnar eru léttari á mánudögum - bæði í Mogganum og Fréttablaðinu.

fimmtudagur, september 15, 2005

Krílin sofnuð...

... en diskarnir ekki enn komnir í uppþvottavélina. Þeir rata þangað sennilega sjálfir ef nógu langur tími líður. Krílafjölskyldan ætlar að leggja land undir dekk á morgun og keyra vestur. Þar stendur til að kveðja fjölskyldumeðlim sem horfinn er til æðra tilverusviðs. Krílin fara með en fá að vera í næsta firði á meðan kveðjuathöfnin fer fram. Notum tækifærið og geymum krílin hjá vinafólki sem nýbúið er að fjölga fjölskyldumeðlimum. Gott að geta kíkt á nýtt líf um leið og maður kveður gamalt.

þriðjudagur, september 13, 2005

Bergmál

Það bergmálar í stofunni hjá húsmóðurinni. Ástæðan - engir fatabunkar eða ósamanbrotin rúmföt. Bara berir sófar og stólar og það hreinlega bergmálar. Skrýtið hvað hlutirnir breytast við það að taka aðeins til.

tvöfaldur gin - ekkert tónik

nettengingin

fimmtudagur, september 08, 2005

Lent

og búin að mæta einu sinni í skólann. Ekki alveg búin að tæma úr töskunum en því verður reddað á morgun. Húsmóðirin er ekkert smá brún og sæt og sæl með stjörnulögfræðinginn sem bauð bókaranum sínum og tveimur börnum til Spánar. Ekki slæm bókaralaun það.