Geeeiiiisp....
Húsmóðirin er bara þreytt. Vaknandi börn og kvefpest eiga stóran þátt í þreytunni. Það tekur líka sinn toll að byrja í nýrri vinnu. Ofan á allt þetta var afmælisveisla hjá Garðabæjarguttanum og endaði húsmóðirin ein með ísétandi og vansvefta kríli á meðan stjörnulögfræðingurinn tók enn eitt skrefið í átt að því að gera heiminn að betri stað. Er ekki framfylgni réttvísinnar annars skref í þá átt? En núna eru krílin í það minnsta sofnuð, stjörnulögfræðingurinn kominn heim og húsmóðirin um það bil að hrynja niður. Best að bursta tennur fyrst, kúra sig svo upp í rúm og vona og biðja til Guðs að börnin sofi framyfir sex. Bið ekki um meira.
