Með dofna putta
Húsmóðirin finnur ekki fyrir lyklaborðinu, puttarnir eru með slípiriðu. Nú er búið að slípa og slípa og þá fara puttarnir að láta svona. Verður betra þegar lakkið tekur við og enn betra þegar gluggarnir verða búnir.
1. apríl var skemmtilegur, sérstaklega af því að börnin eru að uppgötva þenna frábæra dag. Varnajaxlinn átti góðan leik, tókst næstum að láta móður sína hlaupa (hún hefði hlaupið ef hún væri ekki svona löt) og prinsessan rauk út í stofuglugga i leit að kisum sem stóri bróðir sagði að væru samankomnar í garðinu. Sú var foj þegar hún komst að því að það var allt í plati. Hún kemur örugglega sterk inn á næsta ári - var ekki alveg með konseptið á hreinu í þetta skiptið en plataði samt fullt. Það var samt meira í þessa átt: "manstu þegar þú stimplaðir á magann þinn? - Nei allt í plati!".
Húsmóðirin hefði hins vegar fagnað því að kaupa falleg húsgögn á lágu verði og skorara hérmeð á Eyjólf að láta verða af því að koma upp markaði með notuð húsgögn með söfnunargildi.

1 sagt:
Hæ! Mamma Mörtu Maríu sagðist vera ólétt á snjáldrinu hennar og ég hringdi auðvitað strax í Mörtu til að spyrja hvort þetta væri virkilega sagt! Iiiii, 1. apríl! Mér fannst þetta svo rakið eitthvað, Marta ólétt, amman ólétt ... börnin gætu leikið sér saman en þar fór það.
Kveðja
GK
Skrifa ummæli
<< Home