miðvikudagur, apríl 22, 2009

Af slagsmálum

Húsmóðirin er afskaplega þreytt á slagsmálum sem hún lendir í við prinsessuna á hverjum morgni þessa dagana. Hvert einasta atriði í aðdraganda þess að koma sér út úr húsi kallar á slagsmál. Prinsessan vill fara í háa sokka, en ekki þessa háu sokka. Prinsessan vill ekki vera í gammósíum því þær krumpast og alls ekki sokkabuxum. Buxur eru uppfinning andskotans að mati prinsessunnar og tannburstinn er óvinur prinsessa um heim allan. Saumar og hælar á sokkum eru píningartæki nútímans og skór eru framlenging á þeim skelfilegu pyntingum sem prinsessur verða fyrir þegar komast þarf út úr húsi fyrir klukkan níu á morgana. Stuttermabolir eru nauðsynlegar flíkur, en þó ekki alltaf, en ekki er sérlega æskilegt að klæða sig mikið yfir stuttermabol. Húfur og vettlingar eru alger óþarfi svo ekki sé talað um efnismeiri skjólflíkur eins og úlpu.
Og þrátt fyrir loforð um verðlaun, hótanir um refsingu eða sögur til að dreifa athyglinni er ekkert sem bítur á prinsessuna. Hún kýs að taka slaginn á hverjum morgni móður sinni til mikils ama.
Slagsmálin halda því áfram enn um sinn.