fimmtudagur, nóvember 10, 2005

Heimahangandi...

Systir húsmóðurinnar kom með nýtt hugtak í gær: heimahangandi húsmóðir. Held að það eigi mjög vel um systurnar þar sem þær eru báðar frekar lítt húslegar og finna ekki knýjandi þörf hjá sér að vakna til að fara að taka til og þvo þvott. Þær teljast því báðar heimahangandi þessi misserin þótt þær telji það nú ekki eftir sér að sinna fjölskyldumeðlimum ef svo ber undir.
Annars verður húsmóðirin illilega vör við það þessa dagana að það fer að styttast í jólin og ritgerðasmíð er enn ekki hafin. Þar sem sú stutta byrjar hjá dagmömmu í næstu viku eru þó allar líkur á að einhver vinna við ritgerðina hefjist fyrir jól. Svo þarf bara að vera þeim mun duglegri eftir jól. Það verður nú ljúft að geta farið að vinna og geta kannski keypt sér peysu af og til án þess að þurfa endilega að vera að rýna of mikið í verðmiðann. Ég tala nú ekki um ef maður gæti bara farið út í búð og keypt sér stígvél! Þá verður húsmóðirin farin að dansa og getur hætt að vera heimahangandi.

2 sagt:

Anonymous Nafnlaus sagði...

So you think you can dance ;)
Dansaðu bara heima hjá þér með krökkunum, það kostar ekkert! Settu svo bara peysu og stígvél á visa og hugsaðu síðar um afleiðingarnar (eins og sannur Íslendingur)!

10/11/05 13:43  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Já það er djöfullegt hvað maður er háður þessum peningafjanda, mann vantar hann alltaf mest þegar minnst er af honum. Það er nú voða gott fyrir sálartetrið að kaupa sér stígvél og svona!!!

11/11/05 11:00  

Skrifa ummæli

<< Home