Gríðarleg vonbrigði
Húsmóðirin varð fyrir töluverðu áfalli við sjónvarpsgláp í gærkvöld. Á dagskrá var hinn mjög svo áhugaverði (svo ekki sé talað um spennandi) þáttur Project Runway. Í gær voru fjórir keppendur eftir og fengu þeir það hlutverk að hanna kjól fyrir íðilfagra sjónvarpskonu sem var á leið á Grammy-verðlaunahátíðina. Út úr tárum, brosum og saumsporum keppenda komu að lokum fjórir kjólar sem dómararnir kepptust síðan við að rakka niður. Skemmst er frá því að segja að ofurkrúttulegi homminn með glossið, hann Austin Scarlett, var sendur heim og Wendy með röndótta hárið sem allir hata vann áskorunina! Nú skal húsmóðirin alveg viðurkenna að kjóllinn hennar Wendy var aðeins meira viðeigandi fyrir tilefnið og Austin hefði alveg mátt hemja sig í silkislæðunum og fjólubláa litnum en þetta var samt áfall. Húsmóðirin hélt nefnilega ákaft með Austin og var búin að bóka það að hann myndi vinna þessa keppni. Sannfæringin um að Austin Scarlett eigi eftir að spjara sig í tískuheiminum þrátt fyrir þessi úrslit bætti þó ástandið örlítið og vonandi kemur að því að spurningunni "Who are you wearing?" sem iðulega er kastað inn á rauða dregilinn verði einhvern daginn svarað "Austin Scarlett".
