miðvikudagur, nóvember 02, 2005

vagg og velta

Það er dálítið fyndið að fylgjast með einstaklingi komast allra sinna ferða ýmist með því að velta sér um gólfið eða tosa sig áfram sitjandi á rassinum. Þessu má húsmóðirin fylgjast með þessa dagana en prinsessan er orðin ansi hreyfanleg. Farin að komast yfir þröskulda þannig að næsta skref er að loka öllum hurðum ef halda á barninu í sjónmáli. Húsmóðirin hefur verið önnum kafin við að koma öryggislokum fyrir í öllum innstungum og sennilega er ekki langt í að taka þurfi dvd-spilarann úr sambandi. Prinsessunni tókst allavega að opna hann um daginn og gerir eflaust tilraun til þess aftur. Húsmóðirin hefur enn ekki lagt í að leita að videó-öryggishlífinni í geymslunni enda hefur prinsessan ekki fest höndina nema einu sinni í tækinu. Sumir myndu þó segja að það væri einu sinni of oft. Best að ráðast á geymsluna í dag.

1 sagt:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Betra að byrgja brunninn áður en barnið dettur ofan í hann.

3/11/05 11:48  

Skrifa ummæli

<< Home