föstudagur, júlí 29, 2005

Heima er bezt

Húsmóðirin er ánægð með að vera komin heim. Enn ánægðari er hún þó með þá staðreynd að drengurinn byrjar aftur í leikskólanum eftir helgi. Þá er möguleiki á að lífið fari að komast í fastar skorður, drengurinn fari að koma sér í rúmið á skikkanlegum tíma og hægt verði að venja þá stuttu af því að vakna á nóttunni.

Þótt ótrúlegt megi virðast þá er húsmóðirin farin að hlakka gríðarlega til að komast aftur í skólann. Þessa dagana er legið yfir kennsluskránni og allir möguleikar á valnámskeiði á haustönn kannaðir. Þar togast á þrennt; hvað er skemmtilegt, hvað er gagnlegt og hvað er líklegt til að vera ekki alltof þungt. Þar sem ætlunin er að komast hjá því að setja þá stuttu í gæslu fyrr en eftir áramót er mikilvægt að allt þetta fari saman og svo þarf að treysta því að hún taki sinn langa lúr á hverjum degi svo að húsmóðirin geti lesið. Gangi það eftir verður húsmóðirin orðin Meistari Jakob fyrr en varir.

fimmtudagur, júlí 28, 2005

Botnið

Meðan laufin sofa...

fimmtudagur, júlí 21, 2005

skemmtileg verðlaunagetraun

Vinkona húsmóðurinnar hefur sett í gang skemmtilega verðlaunagetraun á bloggsíðu sinni. Húsmóðirin getur ekki verið minni maður og setur því þessa gátu fram:

Hvað hétu mótsgestir í Viðey um verzlunarmannahelgina 1984?

(þessi er nú frekar létt til að byrja með)

Þvegið og samanbrotið

Eftir tvo dýrlega sumar- og sólardaga ætlar húsmóðirin að hafast við innandyra í dag. Nýþveginn þvottur verður brotinn saman og föggum pakkað niður í töskur því nú skal land lagt undir fót - eða öllu heldur dekk. Húsmóðurinni hefur semsagt tekist að fá stjörnulögfræðinginn til að leggja niður vinnu í örfáa daga og eyða smá tíma með fjölskyldunni áður en drengurinn byrjar aftur á leikskóla. Hugur húsmóðurinnar er þegar kominn vestur í afa- og ömmuhús.
Freknótt fés brosir því hringinn í dag á meðan samfellur, stuttbuxur og íþróttagallar raðast ofaní tösku.

mánudagur, júlí 18, 2005

Gömlu rörin

Húsmóðirin er glöð í dag, búin að endurheimta foreldra sína úr ríki banda þar sem keyptir voru strigaskór á línuna og börnin tvö fengu gallajakka. Besta gjöfin var þó að fá gömlu rörin heim enda eru þau betri en enginn þegar kemur að því að létta álagið á húsmóðurinni með því að taka drenginn að sér. Og álagsléttingur hefur þegar hafist þ.e. drengnum hefur verið boðið til næturgistingar hjá rörunum. Það verður spennandi að sjá hvernig sú stutta sefur þegar enginn stóri bróðir er til að vekja hana fyrir allar aldir.

laugardagur, júlí 16, 2005

camperar, galdrastrákur og baðstofa

Dagurinn í gær var mun betri en fimmtudagurinn og um það bil það eina sem húsmóðirin afrekaði var að kaupa sér nýja camper-skó. Í dag er á planinu að versla eitt stykki af nýjustu Harry Potter bókinni og kaupa árskort í Laugar og öðlast þar með aðgang að baðstofunni í tvo mánuði - fríkeypis. Nú verður sko legið í ilmgufunni...

föstudagur, júlí 15, 2005

Ofhlaðnir dagar

Húsmóðirin upplifði ofhlaðinn dag í gær. Rétt fyrir hádegið lá leiðin í Fossvoginn þar sem sú stutta var sett út í vagn, drengurinn út í garð að hirða nýslegið gras og húsmóðirin hlammaði sér í sólstól í augnablik. Barnaskúr var yfirvofandi og þurfti húsmóðirin að útbúa heitan rétt fyrir samkunduna. Því var fljótlega ekið í verslun og keypt í réttinn. Hádegisverður snæddur með tengdamóðurinni, vinkonu hennar og tengdamóður sonar vinkonunnar. Garðabæjarguttinn mætti á svæðið, ósofinn og úrillur. Frændurnir náðu engu að síður að reyta megnið af mosanum úr grasflötinni og fylla dótaruslabílinn. Kvörtuðu þó hver undan öðrum með reglulegu millibili.

Leiðin lá heim um hálf þrjú. Útbjó frumsaminn heitan rétt og við mæðgurnar náðum örlítilli hænu áður en við lögðum af stað í Álandið þar sem til stóð að koma hinni verðandi móður á óvart. Asinn var slíkur og þvílíkur að húsmóðirin gleymdi nánast sjálfri sér. Giftingahringurinn varð eftir á hillunni við spegilinn og gjöf hinnar verðandi móður kúrði á eldhúsborðinu. Það var því ekki annað að gera en setja barnið í vinkonufang og bruna aftur heim. Sem betur fer stutt að fara.

Á leið úr boðinu um klukkan átta hringdi stjörnulögmaðurinn. Húsmóðirin sem hélt að hann væri kominn heim og búinn að sækja drenginn til ömmu. Nei, lögmaðurinn var enn í vinnunni - og von á fólki í kvöldkaffi! Húsmóðirin brunaði því í Fossvoginn, sótti drenginn, fór heim, kom liðinu í háttinn og rétt náði að kasta mæðinni áður en lögmaðurinn mætti með gestina með sér. Drukkum te og borðuðum ostaköku og Daimköku og spjölluðum framyfir miðnætti. Húsmóðirin tók síðan að sér að keyra gestina heim um klukkan hálf eitt. Það var mjög þreytt húsmóðir sem lagðist á koddann eftir ofhlaðinn dag.

Garðabæjarbúarnir ætla að sækja drenginn og hafa ofan af fyrir honum í nokkra tíma. Vona að ég nái bara að leggja mig - þyrfti samt að þrífa eldhúsið....

fimmtudagur, júlí 14, 2005

Sólarbrúður

Húsmóðirin er farin að hallast að því að brúðurnar í Brúðubílnum búi yfir töframætti. Í það minnsta sungu þær allar "sól, sól, skín á mig" í gær og börnin tóku undir. Og viti menn, í dag skín sólin sem aldrei fyrr.

miðvikudagur, júlí 13, 2005

Brúðubíllinn

Húsmóðirin fór með gríslingana á Klambratúnið í morgun þar sem Brúðubíllinn beið með öll sín ævintýri. Drengurinn skemmti sér vel og sú stutta fylgdist með af miklum áhuga. Húsmóðir úr Hlíðunum var stödd á Klambratúninu ásamt sonum sínum tveimur og bauð hún heim í kaffi, hummus og ristað brauð. Stóru strákarnir skemmtu sér stórvel í leik á meðan húsmæðurnar spjölluðu vel og lengi. Úr Hlíðunum lá leiðin í Sorpu og Húsgagnahöllina en ferðin endaði hjá tengdamóðurinni sem var guðs lifandi fegin þegar liðið truflaði hana við grasslátt.
Frosið lasagna sett í ofninn og húsmóðirin borðaði einsömul þar sem stjörnulögmaðurinn er að verja réttlæti heimsins. Verð sennilega sofnuð fyrir níu. Zzzzzzzz.....

mánudagur, júlí 11, 2005

Tásusokkar

Nú voru húsmóðirin og sonurinn heldur betur dugleg. Tókum okkur til og þrifum baðherbergið hátt og lágt. Tókum svo til við stofuna og ruku sófar frá veggjum og gluggar voru pússaðir. Heimilið er því hreinna en oft áður!

Til að verðlauna sig ætla húsmóðirin og sonurinn út í Kringlu að kaupa forláta tásusokka. Í æsku dreymdi húsmóðurina um slíka sokka en sokkadraumurinn varð aldrei að veruleika. Nú er sonurinn búinn að biðja um tásusokka og er húsmóðirin staðráðin í að hann mun ekki vaxa úr grasi með sama brotna drauminn.

Guði sé lof...

... fyrir Cartoon Network. Þökk sé þessari stórkostlegu teiknimyndarás getur húsmóðirin vafrað um netheima í friði og litla prinsessan fær að liggja óáreitt á leikteppinu sínu. Stóri bróðir horfir bara á Denna dæmalausa í rólegheitum. Úps, húsmóðirin hrósaði happi of snemma! Stóri bróðir er kominn yfir á leikteppið... er ennþá frekar rólegur en ef þetta fer eins og venjulega þá endar þetta með því að hann klappar henni voða mikið á kollinn og endar svo á því að leggjast ofaná hana. Svoleiðis sýnir maður litlu systur sinni væntumþykju þegar maður er þriggja ára. Og þá er ekki annað að gera en að vitna í hina stórkostlegu kvikmynd Summer Holiday "Oh, the agonies of motherhood!"

laugardagur, júlí 09, 2005

Galeiðan

Húsmóðirin lætur það alltaf koma sér jafn mikið á óvart hvað eiginmaðurinn á auðvelt með að sýna væntumþykju í hennar garð og barnanna þegar hann hefur verið úti á galeiðunni. Það gerist nú ekki mjög oft að eiginmaðurinn fari út á þessa blessuðu galeiðu en segja má að galeiðan hafi orðið á vegi hans í nótt sem leið. Þegar heim var komið í morgunsárið voru faðmlögin ófá og varð eiginmanninum tíðrætt um að nú ætlaði hann að fara með húsmóðurina og krílin til Spánar - þau væru svo frábær og yndisleg osfrv. að þau ættu það svo sannarlega skilið að komast í sólina. Í hádeginu í dag var hann þó ekki eins áfjáður í sólarlandaferð og dró orð sín öll tilbaka. Til allrar hamingju var það þó aðeins húsmóðirin sem fékk veður af þessum ferðaáætlunum í nótt og gerði hún sér fyllilega grein fyrir að mögulega væru loforðin orðin tóm.

Húsmóðirin á þó örlitla von um að komast úr landi í sumar því hún veit að ef réttu skilyrðin skapast verður eiginmaðurinn ekki lengi að drífa krílafjölskylduna í sólina. Réttu skilyrðin eru þó ekki á hinni margumræddu galeiðu - svo mikið er víst.

föstudagur, júlí 08, 2005

IKEA

Húsmóðirin fór í IKEA í dag - alls ekki af því að eitthvað vantaði til heimilisins, því fer fjarri. Ástæðan var öllu einfaldari. Þriggja ára sonurinn er í sumarfríi frá leikskólanum og eitthvað þarf barnið að hafa fyrir stafni. Boltaland í IKEA er hin besta skemmtun og kostar ekki neitt ólíkt Ævintýralandi í Kringlunni. Mikið fjör í IKEA og svo fengum við okkur hádegismat - pulsu og kók og ís á eftir á spottprís. Svona á lífið að vera.

miðvikudagur, júlí 06, 2005

Sumarbústaður

Húsmóðirin eyddi síðustu fimm dögum í sumarbústað ásamt eiginmanninum, börnunum tveimur og tengdaforeldrunum. Ferðin var fín en tilgangur hennar var fyrst og fremst að slappa of og liggja í leti. Eitthvað fór þó lítið fyrir því að liggja í leti þar sem börnin skiptust á að vakna flestar þær nætur sem dvalið var í bústaðnum. Sú stutta vegna ókunnugs umhverfis og eina nóttina vegna kulda en drengurinn var yfirleitt orðinn svo yfir sig þreyttur að kvöldi að hann dreymdi illa og vaknaði því oft á nóttu. Þá voru dýnur og koddar ekki af fyrsta flokks sort. Þessar aðstæður urðu því til þess að húsmóðirin svaf ekki mikið þessa daga sem áttu að fara í alsherjar afslöppun og er himinlifandi að vera komin heim - og í nettengingu.
Annars er alltaf jafngaman að fólki sem trúir veðurfregnunum á textavarpinu og í sjónvarpinu frekar en eigin nefi sem stungið er út um dyr."Nú, það er sól hérna!" hljómaði um bústaðinn þegar textavarpið var lesið. Gluggarnir grétu ákkúrat þá stundina.

föstudagur, júlí 01, 2005

Sviti

Húsmóðirin upplifði ellefu ára bekk "all over again" í gærkvöld. Nema hvað að í ellefu ára bekk snerist lífið um Bravo-blöð, vinsældarlista rásar tvö, grifflur og stóran eyrnalokk í öðru eyra. Í gærkvöld svitnaði húsmóðirin hins vegar í trylltum dansi þegar gömlu Duran Duran brýnin stigu á stokk. Það verður að viðurkennast að húsmóðirin var ekki æstasti Duran aðdándinn í ellefu ára bekk, hallaðist meira að Wham þótt enginn kæmist með tærnar þar sem Michael Jackson hafði hælana. Tókst engu að síður að syngja með velflestum lögunum í Egilshöll í gær og fannst Simon Le Bon bara sætari á fimmtugsaldrinum en hann var nýskriðinn yfir tvítugt.

Menn í hvítum jökkum með uppbrettar ermar og konur í gammosíum með svitabönd um höfuðið settu svip sinn á kvöldið sem og hiti og sviti innandyra. Þegar út var komið að tónleikum loknum blotnaði maður vel utan frá í einni mestu rigningu sem húsmóðirn man eftir. Allavega þannig að hún hafi þurft að ganga í einar tíu mínútur í slíkri rigningu hér á landi.

Það var í það minnsta gaman í gær og í dag er húsmóðirin þreytt í fótunum. Það verður gott að slaka á um helgina.