fimmtudagur, desember 29, 2005

Blóm

Túlípanarnir eru dauðir. Húsmóðirin er að hugsa um að skipta þeim út fyrir lifandi rósir - þær ættu að hafa það framyfir áramótin. Furan er stórglæsileg þótt smá sé. Alveg spurning hvort eigi að skúra út úr hornunum svo álfarnir fari ekki að gera vesen. Má eiginlega ekki við veseni núna.

sunnudagur, desember 25, 2005

Gleðileg jól!

Þá hafa jólin gengið í garð hjá húsmóðurinni. Jólaundirbúningurinn var tiltölulega stresslítill og þótt ekki hafi allt verið búið á Þorláksmessu var húsmóðirin ekkert að hafa áhyggjur af því. Stjörnulögfræðingurinn ryksugaði bara á aðfangadag og drengurinn skreytti tréð með aðstoð mömmu á meðan jólateiknimyndirnar rúlluðu í sjónvarpinu. Drengurinn stóð sig eins og hetja og þagði allan aðfangadag yfir því hvað var í pakkanum til mömmu - alveg þangað til hann var settur í réttar hendur á aðfangadagskvöld. Þá var lítill kall alveg að springa og tilkynnti um leið og mamman fékk pakkann: "Þetta er úlpa!"
Hreindýrakjötið var algert lostæti og grjónagrauturinn vinsæll hjá yngri kynslóðinni - drengurinn fékk að sjálfsögðu möndluna (með smá tilfæringum þó ;). Heimtur voru að öllu leyti góðar og una fjölskyldumeðlimir sáttir við sitt.
Húsmóðirin óskar landsmönnum til sjávar og sveita gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.

fimmtudagur, desember 15, 2005

Ein ég sit og sauma...

inní litlu húsi. Enginn kemur að sjá mig nema máfarnir sem sveima yfir gömlum pylsum á Verzló-planinu. Húsmóðirin er semsagt að sauma gardínur fyrir jólin og á eftir verða bakaðar og skreyttar piparkökur. Rás tvö fær að hljóma á meðan enda stórskemmtileg jólalög sem ráða þar ríkjum. Húsmóðirin tekur ofan fyrir rásar tvö mönnum að standa fyrir jólalagasamkeppni - nóg er nú komið af cover-útgáfum af gömlum jólalögum. Betra að láta semja ný. Aldrei að vita nema húsmóðirin semji jólalag þegar gardínusaumi lýkur.

þriðjudagur, desember 13, 2005

Próf búið - næst: jól

Húsmóðirin blaðraði sig í gegnum próf í gær og getur nú farið að jólast. Piparkökubakstur á fimmtudag, tannhreinsun í fyrramálið. Svo er bara að redda sér einhverri spjör svo jólakötturinn fari ekki að banka uppá. Einhverjar gjafir úr búð og í pappír og þá mega jólin bara koma. Jólasveinarnir eru farnir að lauma gjöfum í skó og þá er þetta nú allt að koma.
Heilræði dagsins: Jólin koma þrátt fyrir að gólfið sé ekki sótthreinsað.

mánudagur, desember 05, 2005

Eyrnasif

Sú stutta er aftur komin með eyrnabólgu húsmóðurinni til lítillar ánægju. Það er ekki gaman að vera 9 mánaða og pirraður í eyrum - ekkert hægt að gera nema væla og kúra í mömmufangi. Mömmunni finnst þetta heldur ekki gaman - vika í próf og alveg ástæða til að lesa vel fyrir það. En svona er þetta, húsmæður fá ekki að velja tímann sem eyrnabólgan lætur á sér kræla. Þær verða þá bara að lesa á kvöldin í staðinn...