þriðjudagur, nóvember 15, 2005

Neytendapistill

Húsmóðirin er mjög meðvitaður neytandi. Allavega stundum. Í því skyni kaupir hún ýmsar nauðsynjavörur til heimilisins í lágvöruverðsverslunarkeðju hér í bæ. Hefur hún það fyrir algera reglu að fara ekki í slíka verslun á háannatíma því þá tekur troðningsgeðveikin yfirhöndina og ýmislegt misgáfulegt lendir ofan í körfunni. Húsmóðirin hefur eigendur verslunarkeðjunar reyndar grunaða um að ýta undir troðningsgeðveikina með því að dæla einhverjum undarlegum efnum út í verslunina á annatímum en það er meira svona samsæriskenning. Sökum þess að húsmóðirin verslar alltaf þegar fátt fólk er í búðinni er hún einstaklega yfirveguð við innkaupin og gefur sér tíma til að bera saman verð á mismunandi vörutegundum í hillunum. Og þá er komið að kjarna málsins því margt athyglisvert kemur í ljós við slíka skoðun. Margir eru þeirrar skoðunar að magnpakkningar þýði ósjálfrátt hagkvæm innkaup. Í þessari keðju er það ekki alltaf raunin. Tökum dæmi: 1 lítri af uppþvottavéladufti er hlutfallslega ódýrari en 2,5 lítri af sama uppþvottavéladufti, ergó: það er ódýrara að kaupa minni pakkninguna. Risapappakassi fullur af bleium (129 stk.) kostar 1.999.- eða 15,50 pr.stk. Ef keyptur er venjulegur tvöfaldur pakki þá kostar hann um 800.- en í honum eru ca. 65 stk. og kostar stykkið þá 12,30 ergó: það er dýrara að kaupa fleiri bleiur í einu.
Svona fara menn að því að kaupa sér tvö hús og þotu!

4 sagt:

Blogger Ragnheidur sagði...

Já, ertu að safna fyrir þotu?

15/11/05 11:04  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Ég er að safna fyrir þotu! Ég ætla að gefa syni mínum hana og saman ætlum við að að þeysast um brekkurnar í vetur. Ég man að ég var alltaf vond á skíðum en afbragðsgóð á þotu og hafi maður einu sinni lært á svoleiðis tryllitæki gleymir maður aldrei þessari kunnáttu.

15/11/05 14:48  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Það er gott að einhver fylgist með fyrir okkur hin. Ég hef að vísu rekið mig á þetta sjálf en alltaf haldið að ég væri bara eitthvað að rugla; að reikna vitlaust með klikkað lið í kringum mig.

15/11/05 17:16  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Hvaða bloggleti er þetta, frú mín góð?!

19/11/05 01:38  

Skrifa ummæli

<< Home