Afrek
Húsmóðirin vann afrek á föstudagskvöldið. Hljóp fimm kílómetra í Jónsmessunæturhlaupi og var ekki síðust í mark. Yeessssss....
En í fullri alvöru þá var þetta alveg magnað. Hver hefði trúað því að antisportistinn, húsmóðirin í austurbænum, myndi keppa í hlaupi. Tilfinningin var ólýsanleg þegar húsmóðirin hljóp í mark. Tvennt gerði tilfinninguna enn skemmtilegri, annarsvegar kom húsmóðirin í mark strax á eftir Mörthu Ernstdóttur (sem reyndar var búin að hlaupa 10 km ...) og svo var nafn húsmóðurinnar básúnað í gegnum gjallarhorn þegar hún nálgaðist markið. Gjallarhornsmaðurinn reyndist vera gamall skólabróðir sem ákvað að hvetja húsmóðurina síðustu metrana.
Og svo er bara að halda áfram að hlaupa - ætli húsmóðirin endi eins og Forrest Gump???
