Húsmóðurinni hefur borist áskorun. Áskorunin felst hvorki í því að segja af sér né gefa kost á sér í pólítískt starf. Áskorunin er sennilega ekki mjög víðtæk og alveg þess virði að taka henni, þótt ekki sé nema bara til að sjá hvort þriðja tilraunin sé sú sem endist.
Það hefur sumsé verið skorað á húsmóðurina að hefja bloggskrif á ný.
Hér hefst því þriðji kafli í bloggskrifum húsmóður í austurbænum sem í upphafi skrifaði meðan barnið svaf, gerðist svo útivinnandi með úthýst þrif en er nú heimavinnandi af illri nauðsyn!
Sjáum svo hvað setur í þessum þriðja kafla... Er ekki annars allt þá þrennt er?