föstudagur, desember 21, 2007

Breytingajól og áramót

Breytingar í vinnunni. Flutningar eftir jól. Í báðum tilvikum er húsmóðirin á því að breytingar séu til góðs.

þriðjudagur, desember 18, 2007

Loforðin að engu

Húsmóðirin sem ætlaði engin jólakort að senda í ár er búin að sitja við að skrifa utaná umslög í allt kvöld. Afgreiddi reyndar kortin sjálf á fljótlegri hátt. En það er búið að vera gaman að skrifa á umslögin. Kveikti á jólailmkerti sem tengdamamma kom með frá Bandaríkjunum, stillti á LéttBylgjuna með jólalögin, drakk te og skrifaði af miklum móð.
Það var kannski bara vitleysa eftir allt saman að ælta að sleppa jólakortunum.

föstudagur, desember 14, 2007

Lúmskt gaman í óveðri

Húsmóðirin verður að viðurkenna að hafa alltaf haft lúmskt gaman af óveðri. Það er einhver stemming fólgin í því að æða út í vitlaust veður til að binda niður garðhúsgögn og setja sandpoka í kringum aspir sem eiga á hættu að rifna upp. Þannig fannst húsmóðurinni lúmskt gaman af því þegar brothljóð hvað við í miðri ræðu forstjóra í hádeginu og í ljós kom að gervihnattadiskur hafði fokið af þaki bogahússins og hafnað á glerskýli yfir innganginum. Mildi að enginn skyldi slasast og að bíll aðalbílstjórans skyldi sleppa en ákveðið fútt samt að sjá björgunarsveitina koma að tína saman glerbrot og fjarlægja diskinn.
Óveður er svona aðstæður þar sem maður þarf að redda sér og það fílar húsmóðirin. Til dæmis gleymir hún seint fúttinu í því að skipta um dekk á jeppa í leiðindaveðri uppi á miðri heiði á Vestfjörðum með tjakkgarm sem dugði engan veginn undir bílinn á ósléttum veginum. Þá unnu húsmóðirin og pabbi hennar vel saman við að raða grjóti undir bílinn svo að hægt væri að skipta um dekk á meðan prímadonnurnar, ghurkan og móðir henanr, hírðust inni í bíl. Sigurgleðin þegar varadekkið var komið undir og hægt að keyra áfram var ólýsanleg. Það eru nefnilega oft erfiðustu aðstæðurnar sem leiða af sér mestu gleðina.
Þannig eru einmitt óveður.

miðvikudagur, desember 12, 2007

Stelpuveikindi

Stelpurnar á heimilinu eru búnar að vera lasnar. Sú yngri öllu lasnari en mamma hennar en báðar með hálsbólgu, hósta og kvef. Sú stutta með hita, sú stærri ekki. Fjarvinnubúnaður hefur reynst vel í tvo daga en þó hefur reynst nauðsynlegt að aka upp á Höfða síðdegis báða dagana og sinna störfum sem erifiðara er að vinna úr Ofanleitinu.
Amma í Kjaló reddar málunum fyrir hádegi á morgun en eftir hádegi verður fjarvinnubúnaður að duga. Eins gott að hálsbólgan í frúnni versni ekki og endi með hita. Alveg nógu mikið sem á eftir að gera fyrir jól þótt veikindi bætist ekki við.

þriðjudagur, desember 11, 2007

Fuglager

Húsmóðirin var að keyra í átt að leikskólanum þegar hún varð vitni að stórfenglegu náttúrufyribæri. Þúsundir snjótittlinga mynduðu stærðarinnar fuglager sem hreyfiðst í takt við vindinn og myndaði ótrúlegustu furðumyndir. Frúin var svo sokkin ofan í þetta náttúrufyrirbrigði að hún gleymdi sér næstum á ljósunum. Fór reyndar ekki yfir á rauðu en ók ekki af stað á grænu.

laugardagur, desember 08, 2007

Vinna og Batman á laugardagskvöldi

Þótt húsmóðirin sé búin að vinna fram á kvöld á föstudegi og heilan laugardag virðist hún ekki geta hætt. Stjörnulögfræðingurinn kveikti á tölvunni og það þarf ekki meira til. Frúin er farin að svara tölvupóstum í stað þess að horfa á Batman begins með athygli. Nú er hún hins vegar að velta því fyrir sér hvort ekki sé skynsamlegt að slökkva á tölvunni og ná í það minnsta seinni helmingnum af bíómyndinni. Hún virkar nefnilega ágæt - og húsmóðirin hefur alltaf verið sökker fyrir Bruce Wayne...

miðvikudagur, desember 05, 2007

Bækur og bókakápur

Það gladdi húsmóðurhjarta að frétta af tilnefningum til íslensku bókmenntaverðlaunanna. Þar er tilnefnd í flokki fagurbókmennta góð vinkona húsmóðurinnar. Skáldkonan í Skerjafirðinum (áður í Vesturbænum) fær tilnefningu fyrir ljóðabók sína Höggstað og ef húsmóðirin hefði atkvæðarétt myndi Höggstaður fá hennar atkvæði.
Tilnefningin bætir fyrir þá staðreynd að bókakápa ársins reyndist ekki vera kápan á bókinni Ball á Bessastöðum eftir sömu skáldkonu í Skerjafirði. Kápan er flott og bókin sjálf ennþá betri og mælir húsmóðirin hiklaust með sögunni af forsetanum sem leiðist í vinnunni sinni.

mánudagur, desember 03, 2007

Lúlli

Húsmóðirin verður að viðurkenna að hún er næstum búin að skrá sig í bókaklúbb í þeim eina tilgangi að eiga möguleika á að vinna tösku. Engin venjuleg taska í boði og frúnna hefur lengi langað í Lúlla.