mánudagur, janúar 30, 2006

Týnd

Húsmóðirin er mjög spennt fyrir upphafi nýrrar Lost-seríu. Hún er hins vegar ekki viss um að hún nái að halda sér vakandi fram að upphafi þáttarins. Hún er hins vegar fullviss um að nái hún að vaka fram að þætti þá sofnar hún ekki á meðan á honum stendur. Þetta hefur maður uppúr því að eiga tvö kríli sem vekja mann um miðja nótt og ræsa á fætur eldsnemma. Ekki bætti úr skák hvað húsmóðirn var dugleg að hlaupa í hádeginu. Geeeeiiiiisp!

fimmtudagur, janúar 26, 2006

kvöld hins mikla lærdóms

Húsmóðirin ákvað að kvöldið í kvöld yrði kvöld hins mikla lærdóms. Börnin sofnuð, stjörnulögfræðingurinn önnum kafinn við að gæta réttlætis og ekkert áhugavert í sjónvarpinu (allaveg ekki fyrr en kl. 22.25 þegar Aðþrengdar eiginkonur stíga á stokk). Einhverra hluta vegna hefur húsmóðirin þó ekki enn komið sér að verki og er þessi bloggfærsla sennilega skýrasta dæmið um framkvæmdagleðina sem ræður ríkjum þegar kemur að því að draga fram námsbækurnar þegar dagur er að kveldi kominn. Það er sennilega enginn fullkominn þótt húsmóðirin sé glettilega nærri því.

sunnudagur, janúar 22, 2006

Ritstuldur

Húsmóðirin er hneyksluð á Stundinni okkar. Hneyksluð á því að það sé hreinlega gert ráð fyrir því að börn þekki ekki eina frægustu barnfóstru allra tíma og hafi aldrei séð kvikmyndina um hana þótt hún sé komin til ára sinna. Hún er ekki síður hneyksluð á því að framleiðendur og handritshöfundar leyfi sér að stela atriðum úr frægri Disney-mynd sem margir kunna hreinlega utanað. Húsmóðirin lýsir frati á handritshöfunda fyrir hugmyndaleysi og glæpsamlega hegðun. Svo er þetta bara lélegt. Væri ekki skárra að sýna Mary Poppins frekar en að leggjast svona lágt?

laugardagur, janúar 21, 2006

Ammliveisla

Húsmóðirin er lúin eftir heljarinnar afmælisveislu sem haldin var fyrir krílin í dag. Það er alveg ljóst að þegar þeir fjölskyldumeðlimir sem enn eru í fangi foreldra sinna verða farnir að ganga og jafnvel hlaupa (sem verður væntanlega raunin að ári liðnu) komast þeir vart allir fyrir inni í herbergi þeirra systkina. Sennilega verður að hleypa inn í hollum á næsta ári - eða bara sleppa veislunni. Þriðji kosturinn að bjóða börnunum í Ævintýraland og McDonalds. Þá sleppur maður líka við að sinna fullorðna fólkinu. Kannski er það bara heppilegast! Sjáum hvað setur og spyrjum að leikslokum.

þriðjudagur, janúar 17, 2006

Ólsen Ólsen

Húsmóðirin gat ekki annað en brosað út í annað yfir nafni aumingja konunar sem ræddi spilafíkn sína í Kastljósi kvöldsins. Hljóta það ekki að vera örlög konu sem heitir Júlía Olsen að verða spilafíkill?

Kvef og þreyta

hrjáir mannskapinn þessa dagana. Ilmkjarnaolíur hafa haldið öllum meiriháttar sýkingum í burtu en hor lekur úr hverri nös. Sökum slíms og stíflu sefur smáfólkið ekki sem skyldi, ergo: húsmóðirin sefur ekki sem skyldi. Það er því mjög þreytt húsmóðir sem situr á lesstofu og starir á tölvuna. Spurning um að loka augunum aðeins, bara í smátíma, svona rétt til að finna hvernig tilfinningin er, rétt í augnablik...

fimmtudagur, janúar 12, 2006

Trúarmarkaðsfræði

Húsmóðirin sat tíma í Markaðsfræði II (MS) í dag þar sem byrjað var á bæn dagsins og í kjölfarið rætt um nýjasta útspil kaþólsku kirkjunnar. Nú þykir þeim í Vatíkaninu nóg komið af þessu endalausa tali um Jesú og hyggjast markaðssetja Júdas. Spurning hvort maður bjóði fram krafta sína. Að þessu loknu lærði hópurinn um Magnús. Segiði svo að það sé ekki gaman að vera í háskóla.

föstudagur, janúar 06, 2006

Nýárskveðja

Húsmóðirin fékk senda nýárskveðju frá knattspyrnumanninum, leikaranum, borgarfulltrúanum, flugmanninum, alþingismanninum og myndlistamanninum. Drengirnir verða mannalegri með hverju árinu sem líður og finnst húsmóðurinn gaman að fá að fylgjast svona með þeim - en það þarf svosem ekki nýárskveðju til, þeir eru flestir ansi sýnilegir svona dags daglega. Það sem húsmóðirin veltir hins vegar fyrir sér er hversu mörg svona nýárskort drengirnir senda eiginlega út. Hefur hún þá grunaða um að senda út fleiri hundruð kort og jafnvel til fólks sem þeir hafa hvorki heyrt né séð í áratug eða meira. Reyndar talaði húsmóðirin við leikarann í síma í haust en það var í tengslum við framboð borgarfulltrúans svo að það er nú varla að marka.
Þeir sem fengu líka svona kort eru vinsamlegast beðnir um að skrifa komment og láta vita - bara svona til að svala forvitni húsmóðurinnar.

miðvikudagur, janúar 04, 2006

nýtt ár - nýjir staðir

Húsmóðirin óskar landsmönnum til sjávar og sveita farsældar á komandi ári. Sjálf er hún staðráðin í að vera duglegri en andsk..... og vinna þrekvirki á námssviðinu.
Sú stutta hefur skólagöngu sína í dag, ekki seinna vænna enda alveg að verða eins árs.
Drengurinn vill ólmur komast í íþróttaskóla á þessari önn en er ekki alveg viss um að íþróttaskólinn hjá Víkingi sé nógu skemmtilegur - það er nefnilega bara fótbolti þar að hans sögn. Maður verður nú að fá að príla í rimlum og hoppa í hringjum líka þegar maður er bara rétt að verða fjögurra ára.
Þá er bara að baða þá stuttu svo hún verði fín í skólanum á eftir...