mánudagur, október 30, 2006

Húsmæðraorlof

Þá er húsmóðirin komin heim úr orlofinu í Kóngsins Köbenhavn. Ferðin var í einu orði sagt frábær. Guðdómlegur matur, flottar búðir og stórfenglegur félagsskapur. Kvenfélagskonur voru duglegar að "hygge sig" og komu 13 skópör heim með þeim. Húsmóðirin verður þó að viðurkenna að hún á aðeins eitt þeirra. Ýmislegt fleira var keypt og voru sumir með þyngri töskur en aðrir, nefnum engin nöfn. Kvenfélagskonur sluppu þó við að greiða yfirvigt.
Það verður að segjast eins og er að Kaupmannahöfn er alveg frábær borg og nú getur húsmóðirin ekki beðið eftir að komast þangað aftur og skoða allt það sem hún missti af í þessari ferð. Kannski þá verði reynt að vera aðeins minna í Illum.
Það segir kannski eitthvað um stemmninguna að á sunnudögum eru allar verslanir lokaðar í Kaupmannahöfn. Kvenfélagið fór því á kaffihús og hafði það notalegt þar um stund en svo var gengið eftir Strikinu niður á Kongens Nytorv. Á þeirri leið römbuðu frúrnar á einu búðina sem var opin og reyndist hún selja skó. Gengu þær allar inn og skömmu síðar út aftur, þrjár þeirra skóparinu ríkari. Þvílík hamingja sem felst í því að eiga nýja skó!

mánudagur, október 23, 2006

Útskrifuð

Þá er það búið. Húsmóðirin er útskrifuð - orðin magister eins og montna fólkið í Laxness bókunum. Útskriftardagurinn var frábær. Hátíðleg athöfn og drengnum tókst að vinka mömmu sinni þegar hún hafði tekið í höndinni á rektor. Rektor sem, nota bene, skartaði rauðum skóm. Húsmóðurinni fannst það töff.
Og nú er bara að bíða eftir því að atvinnurekendur fari að bítast um starfskrafta húsmóðurinnar. Ætli þurfi ekki bara að breyta bloggtitlinum?

miðvikudagur, október 18, 2006

Nonni

Húsmóðirin fór í klippingu í morgun sem er nú alveg í frásögur færandi þar sem húsmóðurhárið hefur ekki verið skert að neinu viti síðan á vormánuðum. Nú skartar húsmóðirin þessari líka fínu klippingu sem á að virka hvort sem krullurnar fá að ráða ríkjum eða þær barðar niður með hárblásara. Klippari húsmóðurinnar var hinn margumtalaði Nonni Quest. Reyndar hefur lítið borið á manninum undanfarið en þeir sem kannast við að hafa séð mann ganga um Kringluna til fara eins og fiðlarinn á þakinu þá er það einmitt Nonni. Í dag skartaði hann svörtu naglalakki svona til að fullkomna lúkkið. En drengurinn má eiga það að hann kann að klippa og er alls ekki eins furðulegur og hann lítur út fyrir að vera. Það er meira að segja alveg hægt að tala við hann. Húsmóðirin er allavega hæstánægð með klippinguna og vonast hún til að taka sig vel út á sviðinu í Háskólabíói á laugardaginn.

mánudagur, október 16, 2006

Svarbox

Húsmóðirin var að uppgötva svarbox - nýja þjónustu hjá Tollstjóranum í Reykjavík. Nú þarf ekki lengur að bíða í marga klukkutíma eftir þjónustufulltrúa í síma sem reynist síðan vera óalandi og óferjandi með enga þjónustulund. Nú notar maður bara svarbox og spjallar við þjónustufulltrúann á nokkurs konar msn. Kosturinn er að maður fær að klára það sem þarf að segja án þess að gripið sé fram í, starfsmaðurinn neyðist til að lesa það sem maður skrifar og getur ekki notað selektíva heyrn og allir eru sáttir. Frábær þjónusta hjá Tollstjóranum. Aldrei hefði húsmóðirin trúað því en það liggur við að hrópa þurfi húrra fyrir Tollstjóraembættinu.

fimmtudagur, október 12, 2006

Örfáar...

... nýjar myndir á prinsessusíðunni.

miðvikudagur, október 11, 2006

Fyrir 20 árum

... sat húsmóðirin í Grjótaþorpinu eftir skóla og drakk pepsí og át snakk. Þar var búið að koma fyrir litlu svart/hvítu sjónvarpi og myndir af leiðtogafundinum bárust í gegnum það inn á kosningaskrifstofuna. Ættmóðirin hafði hins vegar engan tíma til að horfa á leiðtogafundinn. Hún var í prófkjöri - og mikið assgoti sem það var leiðinlegt. Húsmóðirin man þessa tíma nánast í svart/hvítu eins og leiðtogafundinn sjálfan og var hún gríðarlega fegin þegar í ljós koma að móðir hennar hafði ekki hlotið brautargengi innan Flokksins. Hæfni ættmóðurinnar var þó aldrei dregin í efa. Feginleikinn stafaði af því að þegar prófkjöri lauk endurheimti ellefu ára stúlka móður sína. Það er nefnilega svo gott að hafa mömmu hjá sér á kvöldin - í það minnsta betra en að geyma hana í Grjótaþorpinu.

mánudagur, október 09, 2006

Lagnafréttir

Húsmóðirin mælir með Lagnafréttum í Fasteignablaði Moggans í dag. Tær snilld.

föstudagur, október 06, 2006

Jólagjafaóskalisti frá 1985

1. Grjónastóll
2. lítið borð
3. (búið að tippexa yfir og engin leið að lesa í gegnum þykkt tippexið)
4. Nýju kassettuna með Kosanostra
5. inniskó
6. hillur (litlar)
7. Litlar myndir í smelluramma
8. Litla korktöflu
9. Bækur

Segiði svo að lífið hafi ekki verið einfaldara þegar maður var 11 ára!

miðvikudagur, október 04, 2006

Blandaðu meira...

... sagði ættmóðirin við húsmóðurina í morgun. Átti hún þá við ilmkjarnaolíublöndu sem húsmóðirin hefur verið að ota að móður sinni til að hrekja út skýkla. Eflaust dugar hún líka á illa anda. Ættmóðirin er mikil efasemdarmanneskja en í þetta skiptið hefur hún látið sér segjast og fær meira að segja doktorinn góða til að nudda á sér tærnar uppúr blöndunni göróttu. Hann sem sjaldan fæst í slíkt dekur. En húsmóðirin er semsagt farin að stunda svokallaða arómaþerapíu í hjáverkum. Vísa samt öllum stærri verkum á fagmenn ;)