þriðjudagur, maí 30, 2006

Sniðugur kall

Úr barnaherberginu kl. 7 að morgni. "Aaa Uuu Err Iii - Tinni!". Segiði svo að maður reyni ekki að lesa þótt kunnáttunni sé kannski ekki fyrir að fara.

miðvikudagur, maí 24, 2006

Já,

Húsmóðirn fór semsagt að sjá Da Vinci lykilinn. Hún var fín - pizzan á undan var betri - en myndin var samt fín.

sunnudagur, maí 21, 2006

Hjólaguttar

Húsmóðirin og hyski hennar hefur uppgötvað alveg stórskemmtilegt lókal undir Öskjuhlíðum. Þar safnast saman hjólaguttar á laugardögum og leika listir sínar undir dúndrandi tónlist. Það er ekki lítið sem krílafjölskyldunni finnst gaman að fylgjast með guttunum fljúgandi í loftinu, hringsnúast, sleppa stýri og baða öllum öngum út í loftið og lenda svo á hjólinu og halda áfram eins og ekkert hafi í skorist. Sér í lagi hefur guttinn gaman af því að fylgjast með strákunum og ekki er laust við að hann sjái sjálfan sig í þessu hlutverki eftir nokkur ár. Reyndar er alveg til fyrirmyndar að ekki sést einn einasti hjálmlausi haus á torfærubrautinni og margir hverjir eru búnir víðtækari öryggishlífum. Milli hjólaspretta súpa þeir á Sprite Zero - rétt eins þeim sé borgað fyrir það en sennilegra er að máttur auglýsinganna sé svona mikill.

sunnudagur, maí 14, 2006

Evróvisjónkenningar

Húsmóðirin hefur kenningu. Kenningin viðkemur Silvíu Night og víðfrægu blótsyrði sem hún notar óspart og kemur fyrir í texta framlags Íslendinga til Evróvisjónkeppninnar í ár. Þar sem að útlit er fyrir (samkvæmt veðbönkum og Evróvisjón spekingum) að Silvía sigri EKKI keppninna er húsmóðirin þess fullviss að hún á eftir að blóta eins og togarasjómaður á sviðinu í Aþenu, láta henda sér út úr keppninni og kenna svo samsæri og skemmdaverkum um. Eru ekki alltaf allir að reyna að koma í veg fyrir að hún sigri - þetta vesen með blótsyrðið er bara enn ein leið ráðamanna til að berja alþjóðlegu stórstjörnuna niður. Þeir eru bara hræddir. Í það minnst er líklegt að viðbrögð Silvíu við brottkasti úr keppni verði eitthvað á þessa leið. En í það minnst verður það að segjast að fyrir alþjóðlega stórstjörnu er skárra að láta dæma sig úr keppni en að lenda í 16. sæti. Það er þá allavega hægt að kenna öðru um en slöku gengi í keppninni.

miðvikudagur, maí 10, 2006

Próflokasprengingar

Húsmóðirin tók síðasta prófið í gær. Síðasta í það minnsta í bili. Um var að ræða heimapróf sem þreytt var á 13 klukkustundum "heima" í Odda. Á um það bil klukkutímafresti hristist húsið og skalf þar sem verkamenn voru í óða önn að sprengja upp Reykjavíkurklöppina svo hægt sé að byggja barinn fyrir hagfræðingana. Síðasta prófið var því tekið með stæl - sprengingar skuku svörin.
Svefn húsmóðurinnar var líka truflaður af sprengingum þótt verkamennirnir hafi fyrir löngu verið farnir heim. Eflaust sváfu þeir á sínu græna. Kannast lesendur við orðið "sprengingariða"???

mánudagur, maí 01, 2006

Sonur hvetur föður

Faðir og sonur voru að brjóta saman þvott. Sonurinn lét föður sínum ekkert eftir í afköstum. Þar sem þeir brutu saman þvott gerði faðirinn örstutt hlé á vinnu sinni. Viðbrögð sonarins létu ekki sér standa og hann hrópaði eins og líf föður hans lægi við: "Haltu áfram að brjóta saman pabbi! Það þýðir ekkert að gefast upp núna!"