Í Hveragerði
Húsmóðirin situr á Hótel Örk. Þarf greinilega að gera meira af því að taka að mér að halda utanum skrýtnar ráðstefnur. Þá gefst tóm til að blogga eftir að mesti erillinn í skráningu er yfirstaðinn. Sit hér og bíð eftir því að fyrirlesarar hrynji inn um dyrnar. Ætla að fara um 11 og halda áfram að vinna. Virðist vera um það bil það eina sem gert er þessa dagana. Finnst alltaf vera fimmtudagur. Sú stutta á afmæli á sunnudaginn. Hún er búin að tala um afmælið síðan um áramót og eitt er víst að þar verða að vera blöðrur. Helst vill hún ekki bjóða neinum því að hún á ammæli. Ef hún er spurð hvort hún ætli að bjóða ömmu er svarið alltaf "Nei, Inga ammælí dag". En hún verður eflaust glöð að fá fólk í heimsókn og köku með kertum og stjörnuljósi. Maður verður ekki tveggja ára nema einu sinni. Helgin fer því í afmælisundirbúning.
Alveg spurning hvort maður reyni að blogga oftar...
ps. jólatréð er enn á svölunum.
Alveg spurning hvort maður reyni að blogga oftar...
ps. jólatréð er enn á svölunum.
