föstudagur, nóvember 11, 2005

DNA breytingar

Húsmóðirin horfði á heilara og lækni takast á í Kastljósi í gær. Alltaf gaman þegar andstæðir pólar takast á, sér í lagi þegar þeir tveir sem att er saman tala gersamlega sitthvort tungumálið. Húsmóðurinni þóttu hugmyndir heilarans athyglisverðar, sér í lagi þær sem lutu að því hversu auðvelt á að vera að breyta DNA hjá Jóni og Gunnu. Húsmóðurina hefur lengi dreymt um að vera með lengri leggi, minni brjóst og meira kúlulaga rass svo eitthvað sé nefnt. Þá mætti einnig laga sjónina svo gleraugun væru óþörf. Nú íhugar hún alvarlega að setja sig í samband við svona DNA heilara og athuga hvort ekki sé hægt að kippa þessu í lag með því að breyta erfðaefnunum. Svo mætti kannski skerpa á heilastarfseminni örlítið svo að húsmóðirin geti reynt fyrir sér í Meistaranum hjá Loga Bergmann. Hann er alltaf svo sjarmerandi. Kannski húsmóðirin reyni bara fyrst að ræða við stofnfrumuna sína og sjá hvort hún getur ekki bara kippt þessu í liðinn...

4 sagt:

Blogger inga hanna sagði...

Silvía Nótt var með þessar genapælingar í síðustu viku. Hún telur sig búa yfir fegurðargeninu í það miklum mæli að hún geti deilt með öðrum!

11/11/05 23:27  
Blogger hdb sagði...

Já, ég ætti kannski bara að hringja í Silvíu...

12/11/05 12:52  
Blogger Ragnheidur sagði...

Ég hef einmitt heyrt af því að það sé mjög gott að ræða við stofnufrumur svona á rólegu nótunum og fá þær til að breyta.

13/11/05 19:11  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Ef ég hitti þennan DNA heilara einhverntíma er ég að hugsa um að spyrja hana hvort hún geti breytt vinstri fótleggnum á mér í handlegg!! Mann vantar stundum 3 hendina eða hvað!!! Samkvæmt fræðunum eru álíka jafnmiklar líkur á að við getum breytt þessu eins og erfðaefni mannslíkamans.

15/11/05 09:58  

Skrifa ummæli

<< Home