mánudagur, apríl 20, 2009

Tíminn líður hratt

Sex dagar. Sex dagar án þess að varnarjaxlinn hafi lesið heima og sex dagar síðan húsmóðirin skrifaði staf hér á þessum vettvangi. Það er greinilegt að annir hafa hamlað því sem gera átti. Reyndar kemur fleira en annir til þegar skoðaður er árangur í heimanámi drengsins. Hann er nefnilega afskaplega duglegur við að finna sér eitthvað að gera þegar komið er að háttatíma og bitnar það, því miður, á lestrinum sem yfirleitt fer fram fyrir svefninn.
Í síðustu viku var það uppvaskið sem kom í veg fyrir lestur. Varnarjaxlinn er staðráðinn í að safna sér stimplum og fá verðlaun fyrir viðvik og hefur því tekið upp hjá sjálfum sér að vaska stundum upp eftir kvöldmatinn, sem er ágætt í sjálfu sér. Uppvaskið tekur hins vegar sjö ára dreng óþarflega langan tíma og þegar móðirin segir að nú sé þetta orðið gott og hann eigi að fara að sofa er drengurinn ekki sáttur - uppvaskinu sé ekki lokið! Upphófst nú talsverð rimma með loforðum um að stimpillinn fáist fyrir uppvaskið þótt ekki séu öll glös hrein. Það var hins vegar ekki nóg fyrir drenginn sem endaði með fýlusvip uppi í rúmi, ólesinn.
Það er vandlifað í þessum heimi þegar maður er varnarjaxl og uppvaskari með metnað.