Bókarinn
Ástæðan fyrir spjallleysi undanfarið er sú að húsmóðirin hefur setið sveitt yfir bókhaldi stjörnulögfræðingsins. Í öllum svitanum tókst húsmóðurinni að ná sér í kvef og hefur því bæði svitnað og snýtt sér í bókhaldið. Aumingja endurskoðandinn! Bókhaldsfærslum lauk í dag og ætlar stjörnulögfræðingurinn að launa bókaranum með einhverju góðu að borða í kvöld.
Þá er ekkert annað að gera en að ná úr sér kvefinu áður en haldið verður á vit sólar og stranda á föstudagsmorguninn. aaaaaaaatsjú!
Þá er ekkert annað að gera en að ná úr sér kvefinu áður en haldið verður á vit sólar og stranda á föstudagsmorguninn. aaaaaaaatsjú!

6 sagt:
ég vorkenni þér... og vorkenni þér ekki... (í sömu röð)
Geturðu komið og séð um mitt bókhald líka? Mér finnst þetta svo leiðinlegt þannig að ég kippi mér ekkert upp við horklessur!
Það kostar spánarferð að fá mig í bókhaldið!
Gesundheit!
ok - ég byrja þá að safna!
Þarftu kannski svona? http://www.free-everything.com/funnypics/headcold.shtml
Skrifa ummæli
<< Home