Harðsperrur
Húsmóðirin er eins og spýtukall í dag. Þar sem nú er ætlunin að ná óléttukílóunum af sér er húsmóðirin farin að fara í Laugar og tók vel á því þar fyrir tveimur dögum. Eins og þeir sem reynt hafa að koma sér í form eftir langt hlé vita þá eru harðsperrur verstar tveimur dögum eftir æfingar. Rithöfundur úr vesturbænum lét svo reyna á nýtt leiðakerfi Strætó í gær og ferðaðist alla leið í austurbæinn ásamt syni sínum og apa hans. Úr þeirri heimsókn varð heljarinnar göngutúr sem endaði með kökuáti (sem núllast út í kaloríum séð því við drukkum Sprite zero með). En eftir tvo líkamlega aktíva daga eru harðsperrurnar farnar að segja til sín. Húsmóðirin er semsagt eins og spýtukall í dag.

2 sagt:
betra að vera eins og spýtukall en alls óhreyfð!
Harðsperrum fylgja óþægindi en góð samviska, allavega hjá mér.
Skrifa ummæli
<< Home