Ný húsgögn
Húsmóðirn var verkstjóri við samsetningu nýs rúms fyrir drenginn í gær. Stjörnulögfræðingurinn stóð með stjörnuskrúfjárn megnið úr deginum og skrúfaði saman rúmið eftir forskrift húsmóðurinnar á milli þess sem hlaupið var inn í stofu til að fylgjast með góðgerðarskildinum. Guttinn var mjög hamingjusamur með nýja rúmið, sér í lagi þegar búið var að skreyta það í anda Spiderman. Þrátt fyrir nýtt og stærra rúm fann hann engu að síður þörf hjá sér að skríða uppí til mömmu og pabba um miðja nótt. Það var þó auðsótt að fá hann aftur í rúmið með orðunum "Viltu ekki koma aftur í Spiderman-rúmið". Verkefni dagsins í dag er að koma öllu dótinu fyrir undir hinu hálf-háa Spiderman-rúmi og koma rimlarúminu fyrir. Sökum þess að lottóvinningurinn hefur látið á sér standa verða systkinin að deila með sér herbergi - í það minnsta á meðan þau komast þar bæði fyrir.

1 sagt:
Hvað ætli Spiderman eigi eftir að hjálpa ykkur í uppeldinu í mörg ár í viðbót? Ég hef ekki heldur unnið í Lottó!!! Við getum huggað okkur við þær frábæru fréttir að óvenju fáir voru með réttar tölur síðast jeeeee......
Skrifa ummæli
<< Home