miðvikudagur, ágúst 03, 2005

Matrófóbía

Húsmóðirin rakst á bakþanka í Fréttablaðinu í dag þar sem fjallað er um matrófóbíu sem snýst upp í það að sú sem haldin er fóbíunni fer að sýna af sér hegðun þá er fóbían snérist um. Þarna er þá loksins komið nafn þá þróun sem orðið hefur í ísskápsmálum húsmóðurinnar. Móðir húsmóðurinnar er nefnilega með skipulagðari manneskjum hér á Jörðu og ber ísskápurinn þess glögg merki. Á æskuheimili húsmóðurinnar var það ávísun á skammir og fýlu ef osturinn rataði ekki í rétta hillu og mjólkin villtist á milli hæða. Húsmóðirin var því alltaf staðráðin í því að í hennar ísskáp skyldi ríkja kaos. Ostur myndi fá að liggja innan um epli og appelsínur og mjólk og djús gætu lagst í margþráð ferðalög milli staða innan ísskápsins.

Það var með miklum semingi sem húsmóðirin viðurkenndi fyrir sjálfri sér eftir að flutt var að heiman að kaosið í ísskápnum truflaði hana gríðarlega. Þetta var hreinlega ekki að ganga. Þannig er því nú háttað svo að mjólkin á sinn stað í ísskáp húsmóðurinnar og osturinn situr penn í sinni hillu. Ávextir og grænmeti eru aðskilin í skúffum og sultan er heimakær í efstu hillunni. Ísskápurinn er gríðarlega vel skipulagður og húsmóðirin sefur betur á næturnar á meðan hún siglir hægfara inn í það umbreytinarferli að verða að móður sinni. Eiginmaðurinn þarf þó ekki að hafa áhyggjur af því að vera giftur tengdamóður sinni á meðan jafn mikið drasl er í íbúðinni og raun ber vitni. Mamma gamla myndi ekki þola við í þessu drasli í hálfa mínútu!

3 sagt:

Blogger Ragnheidur sagði...

Mitt ísskápstrikk felst í því að hafa allt á sínum stað en raða pínu kaótískt. Þá lítur út fyrir að það sé ekkert skipulag á þrælskipulögðum ísskáp.

3/8/05 17:14  
Blogger inga hanna sagði...

ég safna stundum matarafgöngum sem ég veit samt með fullri vissu að ég á aldrei eftir að borða. þannig fyllist ísskápurinn!! svona er að vera nýtin.

3/8/05 19:09  
Anonymous Nafnlaus sagði...

las einmitt þessa bakþanka Fréttablaðsins. er alveg að upplifa þessa matrofóbíu ómægod. ekki það að mamma er auðvitað sú besta í heimi en einhvernveginn er stundum erfitt að upplifa takta sem hafa farið í taugarnar á manni sjálfum. hvernig smakkast maturinn annars??

9/8/05 20:09  

Skrifa ummæli

<< Home