Galeiðan
Húsmóðirin lætur það alltaf koma sér jafn mikið á óvart hvað eiginmaðurinn á auðvelt með að sýna væntumþykju í hennar garð og barnanna þegar hann hefur verið úti á galeiðunni. Það gerist nú ekki mjög oft að eiginmaðurinn fari út á þessa blessuðu galeiðu en segja má að galeiðan hafi orðið á vegi hans í nótt sem leið. Þegar heim var komið í morgunsárið voru faðmlögin ófá og varð eiginmanninum tíðrætt um að nú ætlaði hann að fara með húsmóðurina og krílin til Spánar - þau væru svo frábær og yndisleg osfrv. að þau ættu það svo sannarlega skilið að komast í sólina. Í hádeginu í dag var hann þó ekki eins áfjáður í sólarlandaferð og dró orð sín öll tilbaka. Til allrar hamingju var það þó aðeins húsmóðirin sem fékk veður af þessum ferðaáætlunum í nótt og gerði hún sér fyllilega grein fyrir að mögulega væru loforðin orðin tóm.
Húsmóðirin á þó örlitla von um að komast úr landi í sumar því hún veit að ef réttu skilyrðin skapast verður eiginmaðurinn ekki lengi að drífa krílafjölskylduna í sólina. Réttu skilyrðin eru þó ekki á hinni margumræddu galeiðu - svo mikið er víst.

4 sagt:
Bjarni is in trouble!!!
Hitti bróður minn í leigubílaröðinni um 5 leytið í nótt, ég fann strax til með þér og litlu frændsystkynum mínum.
Því sagði ég honum til syndanna og sagði honum að drífa sig hið snarasta heim til sín enda ekki stætt að bróðir... fjölskyldumaðurinn væri á galeiðunni á þessum tíma sólarhrings.
Því má segja að ég hafi gert mitt í að minimæsera skaðann...
Arnór gauti
Gott hjá þér Arnór Gauti. Takk fyrir það!
Þetta þarf sko ekki að vera neinn skaði - bara láta hann standa við stóru orðin og byrja að pakka bikini og strandhandklæðum.
Skrifa ummæli
<< Home