þriðjudagur, ágúst 16, 2005

Sápa

Húsmóðirin á það til að detta í Nágranna og hefur raunar fylgst með íbúum Ramsey strætis annað slagið allt frá því að sýningar hófust fyrir hartnær tuttugu árum. Það besta við Granna er að það er hægt að taka sér tveggja ára hlé frá því að horfa en vera samt ekki nema einn þátt að koma sér inn í allt sem hefur gerst frá því að síðast var horft. Grannar hafa reynst húsmóðurinni sérstaklega vel í fæðingarorlofum og stundum hefur húsmóðirin gerst sek um að horfa á þáttinn bæði í hádeginu og seinnipartinn. Í flestum tilvikum er það þó helst til mikið af hinum góða.
Eitt er það þó sem alltaf hefur vafist fyrir húsmóðurinni og það er hvernig tímanum líður hjá þessum andfætlingum okkar. Sumir verða átján ára og mega þá kaupa sér bjór hjá Lou - svo líða kannski sex til sjö ár, viðkomandi leikari hættir í þáttunum og snýr svo aftur, rétt fyrir tuttugu og eins árs afmælið! Sumar konur í Nágrönnum virðast líka vera fílar. Í það minnsta hafa þær meðgöngutíma á við fíla. Izzy varð til dæmis ólétt þegar húsmóðirin var nýbúin að eignast barn en það var fyrir sléttum sex mánuðum. Hún ætti því samkvæmt okkar tímatali að vera komin u.þ.b. sex mánuði á leið. Stúlkan er hins vegar enn í dag mjó eins og kústskaft og ekkert farið að styttast í að hún eigi þetta blessaða barn. Svona er nú sápuveröldin skrýtin.

4 sagt:

Blogger inga hanna sagði...

Ég skil bara ekkert í þeim að hafa tekið Grannar, allir þurfa góða granna... lagið út. Það var uppáhalds lagið mitt.

16/8/05 14:14  
Blogger hdb sagði...

Já það var náttúrlega skandall

16/8/05 15:41  
Blogger Inga sagði...

Það sem mér finnst alltaf merkilegt við Nágranna er að á hátíðarstundum eins og brúðkaupum, stórafmælum og jarðaförum er alltaf bara nágrönnunum boðið, ekki raunverulegum ættingjum. Ég held ég bjóði til dæmis BARA íbúum á Birkimel í brúðkaupið mitt, þegar það verður!

16/8/05 16:47  
Blogger inga hanna sagði...

Góð hugmynd hjá þér Inga, ég verð að flytja á Birkimel fyrir þann tíma.

16/8/05 20:56  

Skrifa ummæli

<< Home