Hróður gamalla félaga
Húsmóðurinni finnst gaman að fylgjast með gömlum félögum gera það gott. Þannig er hún glöð á morgnanna að sjá gamlan sessunaut úr skóla spjalla við hina og þessa um heima og geima á öldum ljósvakans. Annar skólafélagi hefur tekið að sér að ritstýra unglingablaði í samvinnu við sér tíu árum yngri mann. Reyndar vill stjörnulögmaðurinn meina að frúin sé of gömul í starfið en hún sinnir því ágætlega að mati húsmóðurinnar. Þá er gamall bekkjarfélagi duglegur við að koma sér í sviðsljósið fyrir þann starfa að flytja inn mismerkilega listamenn til að skemmta landanum. Það gladdi hjarta húsmóðurinnar óneitanlega mikið að sjá tvo gamla bekkjarfélaga nefnda í nýjasta eintaki Frjálsrar verslunar. Það er ekki frá því að henni finnist hún eiga pínulítinn hlut í milljónunum sem þeir þéna og gleðst yfir velgengni þeirra enda um eðaldrengi að ræða. Telur húsmóðirin víst að stúlka ein úr ranni gamalla félaga gráti það í dag að hafa látið annan þeirra róa á sínum tíma. Er það nokkuð ljóst að stúlkan sú myndi ekki slá hendinni á móti þeim lífsstíl sem herran getur boðið uppá í dag. Menn sem eru nördalegir og pínu klikk geta nefnilega orðið ríkir þegar fram líða stundir.

1 sagt:
það eru örugglega fleiri pínu klikk nördar sem eru hreinlega bara svoleiðis ennþá! það hefði verið glæfralegt happdrætti ef stúlkan hefði skellt sér á einn slíkan í denn.
Skrifa ummæli
<< Home