miðvikudagur, ágúst 10, 2005

Loftljós - taka 1

Úff - húsmóðirn er sveitt eftir fyrstu lotu í átökum við að koma upp loftljósi í barnaherberginu. Það er greinilegt að á heimilið vantar svona borvél til að skrúfa allan fjandann. Ef slíkt tól hefði verið til á heimilinu væri húsmóðirin ekki svona sveitt og illt í úlnliðnum og væri þar að auki löngu búin að setja upp ljósið. En það er víst ekki eftir neinu að bíða - rafmagnstengingar bíða. Best að muna að slá út fyrst ;)

1 sagt:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Ekki gleyma að tékka á því hvað nágrannarnir kunna að luma á áður en þú ferð með úlnliðinn á þér næst.

11/8/05 13:10  

Skrifa ummæli

<< Home