Heima er bezt
Húsmóðirin er ánægð með að vera komin heim. Enn ánægðari er hún þó með þá staðreynd að drengurinn byrjar aftur í leikskólanum eftir helgi. Þá er möguleiki á að lífið fari að komast í fastar skorður, drengurinn fari að koma sér í rúmið á skikkanlegum tíma og hægt verði að venja þá stuttu af því að vakna á nóttunni.
Þótt ótrúlegt megi virðast þá er húsmóðirin farin að hlakka gríðarlega til að komast aftur í skólann. Þessa dagana er legið yfir kennsluskránni og allir möguleikar á valnámskeiði á haustönn kannaðir. Þar togast á þrennt; hvað er skemmtilegt, hvað er gagnlegt og hvað er líklegt til að vera ekki alltof þungt. Þar sem ætlunin er að komast hjá því að setja þá stuttu í gæslu fyrr en eftir áramót er mikilvægt að allt þetta fari saman og svo þarf að treysta því að hún taki sinn langa lúr á hverjum degi svo að húsmóðirin geti lesið. Gangi það eftir verður húsmóðirin orðin Meistari Jakob fyrr en varir.

2 sagt:
Ertu bara að þessu skólabrölti til þess eins að sofa? Þú veist: Meistari Jakob, meistari Jakob, sefur þú? Sefur þú?
Auðvita ertu að verða spennt að komast í skólann aftur :) enda fullt af skemmtilegu fólki þar og hvað er betra en að vera kaffærð í verkefnum og lestri. Sú stutta á eftir að styðja mömmu sína - don´t worry!
Skrifa ummæli
<< Home