IKEA
Húsmóðirin fór í IKEA í dag - alls ekki af því að eitthvað vantaði til heimilisins, því fer fjarri. Ástæðan var öllu einfaldari. Þriggja ára sonurinn er í sumarfríi frá leikskólanum og eitthvað þarf barnið að hafa fyrir stafni. Boltaland í IKEA er hin besta skemmtun og kostar ekki neitt ólíkt Ævintýralandi í Kringlunni. Mikið fjör í IKEA og svo fengum við okkur hádegismat - pulsu og kók og ís á eftir á spottprís. Svona á lífið að vera.

2 sagt:
ekkert smá stuð.. og það þægilegasta er að þá er hægt að skoða í friði í búðinni..
Nákvæmlega - alger snilld!
Skrifa ummæli
<< Home