Guði sé lof...
... fyrir Cartoon Network. Þökk sé þessari stórkostlegu teiknimyndarás getur húsmóðirin vafrað um netheima í friði og litla prinsessan fær að liggja óáreitt á leikteppinu sínu. Stóri bróðir horfir bara á Denna dæmalausa í rólegheitum. Úps, húsmóðirin hrósaði happi of snemma! Stóri bróðir er kominn yfir á leikteppið... er ennþá frekar rólegur en ef þetta fer eins og venjulega þá endar þetta með því að hann klappar henni voða mikið á kollinn og endar svo á því að leggjast ofaná hana. Svoleiðis sýnir maður litlu systur sinni væntumþykju þegar maður er þriggja ára. Og þá er ekki annað að gera en að vitna í hina stórkostlegu kvikmynd Summer Holiday "Oh, the agonies of motherhood!"

2 sagt:
Vá, langt síðan ég hef horft á Summer Holiday. Ég þarf sennilega heldur ekki vídeó til þess ... bara að loka augunum.
Nei einmitt - hver þarf á nútímatækni að halda þegar maður getur spilað myndina alveg frá upphafi til enda í huganum. Reyndar horfðum við svona tvö þúsund milljón skrilljón sinnum á þessa mynd á ca. 4 ára tímabili þannig að það er kannski ekki skrýtið.
Skrifa ummæli
<< Home