Tásusokkar
Nú voru húsmóðirin og sonurinn heldur betur dugleg. Tókum okkur til og þrifum baðherbergið hátt og lágt. Tókum svo til við stofuna og ruku sófar frá veggjum og gluggar voru pússaðir. Heimilið er því hreinna en oft áður!
Til að verðlauna sig ætla húsmóðirin og sonurinn út í Kringlu að kaupa forláta tásusokka. Í æsku dreymdi húsmóðurina um slíka sokka en sokkadraumurinn varð aldrei að veruleika. Nú er sonurinn búinn að biðja um tásusokka og er húsmóðirin staðráðin í að hann mun ekki vaxa úr grasi með sama brotna drauminn.
Til að verðlauna sig ætla húsmóðirin og sonurinn út í Kringlu að kaupa forláta tásusokka. Í æsku dreymdi húsmóðurina um slíka sokka en sokkadraumurinn varð aldrei að veruleika. Nú er sonurinn búinn að biðja um tásusokka og er húsmóðirin staðráðin í að hann mun ekki vaxa úr grasi með sama brotna drauminn.

5 sagt:
Hafði það djúpstæð áhrif á þig að fá aldrei tásusokka?
Ég átti tásusokka og óska engum þess að alast upp án þeirra.
Ja, þetta með djúpstæðu áhrifin... Það er í það minnsta tvennt sem ég minnist að hafa langað óstjórnlega í en aldrei fengið. Annað er tásusokkar en hitt er grjónastóll. Ég hef það á 5 ára áætlun að kaupa grjónastól fyrir drenginn. Segiði svo að maður geti ekki upplifað drauma sína í gegnum börnin.
Þetta með að Inga Hanna hafi átt tásusokka er nefnilega málið - það áttu allir tásusokka. En þetta var sennilega eins og með Sóda-strímið - mömmu fannst þetta eitthvað tilgangslaust.
Mamma hefur heldur aldrei skilið sportið við að eiga eitthvað bara af því allir aðrir eiga svoleiðis. Aðalsokkarnir þegar ég var í Fossvogsskóla voru hins vegar þessir með gúmmístjörnunum á iljunum. Ég fékk meira að segja svoleiðis, sennilega af því mamma sá einhverja praktík í því að maður rynni síður á hausinn í þeim.
Alveg sammála mömmu þinni með tilgangsleysi tásusokka. Ég ólst upp án þeirra en eignaðist eitt par þegar ég var orðin ca. 26 ára - ekkert smá óþægilegt drasl!!! Vona þó að Björgvin Haukur sé í hamingjukasti. Mikið rosalega hlakka ég til þess dags þegar hann fær leið á grjónastól framtíðarinnar og ákveður í reiðikasti að klippa hann í sundur. Vona að ég fái að vera fluga á vegg og sjá svipinn á ykkur Bjarna þegar þið gangið inn í herbergi!!! Love you anyway.
Skrifa ummæli
<< Home