föstudagur, júlí 15, 2005

Ofhlaðnir dagar

Húsmóðirin upplifði ofhlaðinn dag í gær. Rétt fyrir hádegið lá leiðin í Fossvoginn þar sem sú stutta var sett út í vagn, drengurinn út í garð að hirða nýslegið gras og húsmóðirin hlammaði sér í sólstól í augnablik. Barnaskúr var yfirvofandi og þurfti húsmóðirin að útbúa heitan rétt fyrir samkunduna. Því var fljótlega ekið í verslun og keypt í réttinn. Hádegisverður snæddur með tengdamóðurinni, vinkonu hennar og tengdamóður sonar vinkonunnar. Garðabæjarguttinn mætti á svæðið, ósofinn og úrillur. Frændurnir náðu engu að síður að reyta megnið af mosanum úr grasflötinni og fylla dótaruslabílinn. Kvörtuðu þó hver undan öðrum með reglulegu millibili.

Leiðin lá heim um hálf þrjú. Útbjó frumsaminn heitan rétt og við mæðgurnar náðum örlítilli hænu áður en við lögðum af stað í Álandið þar sem til stóð að koma hinni verðandi móður á óvart. Asinn var slíkur og þvílíkur að húsmóðirin gleymdi nánast sjálfri sér. Giftingahringurinn varð eftir á hillunni við spegilinn og gjöf hinnar verðandi móður kúrði á eldhúsborðinu. Það var því ekki annað að gera en setja barnið í vinkonufang og bruna aftur heim. Sem betur fer stutt að fara.

Á leið úr boðinu um klukkan átta hringdi stjörnulögmaðurinn. Húsmóðirin sem hélt að hann væri kominn heim og búinn að sækja drenginn til ömmu. Nei, lögmaðurinn var enn í vinnunni - og von á fólki í kvöldkaffi! Húsmóðirin brunaði því í Fossvoginn, sótti drenginn, fór heim, kom liðinu í háttinn og rétt náði að kasta mæðinni áður en lögmaðurinn mætti með gestina með sér. Drukkum te og borðuðum ostaköku og Daimköku og spjölluðum framyfir miðnætti. Húsmóðirin tók síðan að sér að keyra gestina heim um klukkan hálf eitt. Það var mjög þreytt húsmóðir sem lagðist á koddann eftir ofhlaðinn dag.

Garðabæjarbúarnir ætla að sækja drenginn og hafa ofan af fyrir honum í nokkra tíma. Vona að ég nái bara að leggja mig - þyrfti samt að þrífa eldhúsið....

2 sagt:

Blogger Ragnheidur sagði...

Þetta var svo flókinn dagur að ég varla skildi hann. Og tengdamóðir sonar vinkonu tengdamóður húsmóðurinnar? Úff!

15/7/05 18:20  
Blogger hdb sagði...

Tell me about it!

16/7/05 10:57  

Skrifa ummæli

<< Home