Gömlu rörin
Húsmóðirin er glöð í dag, búin að endurheimta foreldra sína úr ríki banda þar sem keyptir voru strigaskór á línuna og börnin tvö fengu gallajakka. Besta gjöfin var þó að fá gömlu rörin heim enda eru þau betri en enginn þegar kemur að því að létta álagið á húsmóðurinni með því að taka drenginn að sér. Og álagsléttingur hefur þegar hafist þ.e. drengnum hefur verið boðið til næturgistingar hjá rörunum. Það verður spennandi að sjá hvernig sú stutta sefur þegar enginn stóri bróðir er til að vekja hana fyrir allar aldir.

2 sagt:
foreldrar eru lífsnauðsyn fyrir desperate housewives...
gamla settið klikkar aldrei, komst að því um helgina hvað þau geta komið að góðum notum, sérstaklega þegar maður þarf næturpössun ;)))
kveðja
allý
Skrifa ummæli
<< Home