Sumarbústaður
Húsmóðirin eyddi síðustu fimm dögum í sumarbústað ásamt eiginmanninum, börnunum tveimur og tengdaforeldrunum. Ferðin var fín en tilgangur hennar var fyrst og fremst að slappa of og liggja í leti. Eitthvað fór þó lítið fyrir því að liggja í leti þar sem börnin skiptust á að vakna flestar þær nætur sem dvalið var í bústaðnum. Sú stutta vegna ókunnugs umhverfis og eina nóttina vegna kulda en drengurinn var yfirleitt orðinn svo yfir sig þreyttur að kvöldi að hann dreymdi illa og vaknaði því oft á nóttu. Þá voru dýnur og koddar ekki af fyrsta flokks sort. Þessar aðstæður urðu því til þess að húsmóðirin svaf ekki mikið þessa daga sem áttu að fara í alsherjar afslöppun og er himinlifandi að vera komin heim - og í nettengingu.
Annars er alltaf jafngaman að fólki sem trúir veðurfregnunum á textavarpinu og í sjónvarpinu frekar en eigin nefi sem stungið er út um dyr."Nú, það er sól hérna!" hljómaði um bústaðinn þegar textavarpið var lesið. Gluggarnir grétu ákkúrat þá stundina.

3 sagt:
mér finnst þetta með sólina nú bara vera brilliant jákvæðni :)
það er sorglegt hvað maður er orðinn háður netsambandi. ég tók eftir þessu þegar ég var sjálf í bústað um daginn. en viti menn, ég missti ekki af neinu... held ég allavega...
alger snilld þetta með sólar-veðurfréttirnar og grenjandi gluggana - það má alltaf sannfæra sjálfan sig um að tilveran sé fullkomin þegar hún er svo fjarri því að vera það!
Þetta getur reyndar alveg verið í hina áttina. Þegar við bjuggum í Cambridge og vorum þar í sól og sælu var oft fullyrt að það væri rigning hjá okkur - það var sagt á CNN!
Skrifa ummæli
<< Home