Viðskiptasnilli
Nú er húsmóðirin ægilega ánægð með snilli sína og mælsku. Okkur hjónunum áksotnaðist stærðarinnar eldunartæki um daginn sem olli nokkrum vandræðum því sökum stærðarinnar kemst tækið engan veginn fyrir þar sem því er ætlað að vera. Gamla tækið sem gegnir sama tilgangi stendur líka vel fyrir sínu þótt útlitið sé ekki upp á marga fiska. Fannst okkur því ekki þjóna neinum tilgangi að skipta stóra fína tækinu út fyrir annað smærra. Nú voru góð ráð dýr því ekki er margt til sem heimilið þarfnast í þeirri verslun sem eldunartækið kemur úr. Húsmóðirin brá því á það ráð að hringja milli manna í fyrirtækinu sem verslunina rekur og til að gera langa sögu stutta þá fékk frúin það í gegn að fá tækið endurgreitt. Við hjónin munum því skunda í aðra verslun innan skamms og leggja féð sem fékkst fyrir eldunartækið í eðalkaffimaskínu sem er svo fullkomin að hún nánast drekkur fyrir mann kaffið.
Þið vitið þá hvert þið eigið að leita ef ykkur þyrstir í espresso, latte, macchiato, cappuchino...
Þið vitið þá hvert þið eigið að leita ef ykkur þyrstir í espresso, latte, macchiato, cappuchino...

3 sagt:
Heppin ég að það er stutt úr skúringarvatninu sem kallast kaffi hér á spítalanum á þetta eðalkaffihús!
Ekkert smá heppin - alveg spurning um að þú verðir þér bara úti um lykla svona ef ég skyldi bregða mér af bæ.
OH, ég trúi ekki að þið verðið á undan mér - og ég sem er mun meiri koffínisti...
Skrifa ummæli
<< Home