Geisladiskatiltekt
Húsmóðirin hefur hafist handa við sumartiltekt. Fyrsta verkið fólst í því að taka alla geisladiska okkar hjóna og koma þeim fyrir í kössum sem keyptir voru í IKEA í gær. Húsmóðirin gat þó ekki setið á sér, leyfði meyjunni í sér að brjótast fram og tók sér smá aukatíma í að raða geisladiskunum í stafrófsröð svo að auðveldara sé að finna þá tónlist sem leitað er að. Ýmislegt kom í ljós við þessa iðju, t.d. geisladiskur sem við hjónin gerðum dauðaleit að fyrir brúðkaupið en fannst hvergi.
Eitt kom mér þó á óvart en aðeins einn diskur er til í tveimur eintökum. Ég hef alltaf staðið í þeirri trú að við hjónin hefðum mjög áþekkan tónlistarsmekk og vorum við bæði tiltölulega dugleg við að kaupa geisladiska áður en við rugluðum reytum okkar saman. En nei, aðeins einn einasti geisladiskur til í tveimur eintökum. Þannig að ef einhvern vantar Automatic for the people með R.E.M. þá getum við mögulega séð af öðru eintakinu í góðar hendur.

5 sagt:
Monica mín, chilla bara :-)
Þetta minnir ískyggilega mikið eina sem byrjaði að flokka vídeóspólurnar í Kjalarlandinu eftir efni. Skrifaði svo leikstjóra, helstu leikara og lýsingu á efni spólunnar og bjó til þessa fínu möppu.
Já, þetta var einmitt sami gírinn! Maður getur ekki bloggað endalaust á meðan barnið sefur. Og svona fyrir þá sem ekki vita þá var ég atvinnulaus og ekki í skóla þegar ég tók videóspóluflokkunarkastið;)
Ég er með miklu sniðugri lausn á þessu geisladiskavandamáli - einfaldlega henda þessu helv... drasli! Það gerum við Ásmundur reglulega; setjum skemmtilega tónlist á og veljum ca. 10 til 15 diska hvert sem mega alveg missa sín. Þegar maður er farinn að finna geisladiska í safninu sem keyptir voru árið 1989 þá er náttúrlega bara eitthvað að!!!
Um að gera að setja alla tónlistina inn í tölvuna, á ipoddinn og henda blessuðum hulstrunum!
Skrifa ummæli
<< Home