Séð og heyrt í sundi
Húsmóðirin fór með fjölskylduna í sund í gær. Sólin skein í heiði og til að hægt væri að njóta hennar til fulls varð Laugardalslaugin fyrir valinu. Litla prinsessubarnið fór því í útisundlaug í fyrsta skipti á ævinni með forláta sundhettu á höfði. Skemmst er frá því að segja að sundferðin gekk vel og skemmtu börnin tvö sér stórvel, ekki síst sú stutta sem hló og skríkti í barnalauginni.
Laugarnar eru alltaf góður staður að fara á ef áhugi er á að komasta að hinu og þessu um mökunarferli borgaranna. Þannig æxlaðist í gær að húsmóðirin rakst á ónefnda æskuvinkonu sem í seinni tíð hefur látið lyfta barminum allverulega. Var vinkonan stödd í heita pottinum ásamt ónefndum fyrrverandi útvarpsmanni sem er um það bil helmingi eldri en húsmóðirin og vinkonan. Reyndar kemur samband þeirra sem slíkt ekki á óvart þar sem þau hafa verið svona ,,on and off" undanfarin ár en síðast þegar húsmóðirin vissi voru þau ,,off". Ekki var annað að sjá í gær en að þau væru aftur ,,on". Ef bið verður á laugaferð hjá húsmóðurinni má væntanlega lesa um það í Séð og heyrt þegar þau verða aftur ,,off".

4 sagt:
séð og heyrt birtir nú nöfn.... ertu til í það svo slúðrið verði betra?
Það er mjög hörð ritstjórnarstefna á húsmæðravefnum og verða engin nöfn birt! Þeir sem til þekkja vita hverja um ræðir, hinir geta kannski, mögulega fengið nöfn uppgefin eftir öðrum leiðum.
byrjar nafn hennar á K og nafn hans á J?
Þú þekkir greinilega nógu vel til Lísa mín :)
Skrifa ummæli
<< Home