fimmtudagur, júní 02, 2005

Jæja....

... þá ætlar maður að fara að nýta tímann á meðan barnið sefur í eitthvað allt annað en að taka til heima hjá sér, stunda líkamsrækt eða bara fara út að labba. Nei, nú ætlar húsmóðirin í austurbænum að láta reyna á hversu mikill tölvunörd hún er í raun og veru og fara að blogga. Þið sem þekkið mig megið svo alveg gera grín að mér þegar ég spring á limminu.
En bara svona til að hafa það alveg á hreinu þá var ég einstaklega slakur dagbókaskrifari á æsku- og unglingsárum svo að ég lofa ekki neinu með framvinduna hér.
Sjáum svo bara til hvort uppákomur í lífi húsmóður í austurbænum teljast nógu skemmtilegar til að sú hin sama sjái ástæðu til að deila þeim með þeim sem flækjast hingað inn.

2 sagt:

Blogger inga hanna sagði...

Ýkt góð hugmynd hjá þér að fara að blogga - ég tala nú ekki um þegar sólin skín svo skært að mann verkjar í augun...

2/6/05 14:23  
Blogger hdb sagði...

Já ég veit - maður getur nú ekki verið í sólbaði allan daginn;)

2/6/05 14:31  

Skrifa ummæli

<< Home